Sjóðfélagafundur EFÍA mánudaginn 10. febrúar kl. 12:00

Sjóðfélagafundur EFÍA mánudaginn 10. febrúar kl. 12:00

Mánudaginn 10. febrúar kl. 12:00 fer fram sjóðfélagafundur EFÍA.

Farið verður yfir ávöxtun sjóðsins á síðasta ári og hvernig nýja árið fer af stað. Einnig verður fjallað um möguleika í lífeyrismálum tengdum séreign og tilgreindri séreign. Auk þess verður stuttlega fjallað um dóm Hæstaréttar þar sem deilt var um samþykktabreytingar hjá LIVE, lífeyrissjóði verzlunarmanna.

Fundurinn verður haldinn í sal FÍA að Hlíðasmára 8. Léttar hádegisveitingar verða í boði og að sjálfsögðu opið fyrir spurningar og umræður.