Breyting á vöxtum sjóðfélagalána
Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka fasta vexti óverðtryggðra lána úr 8,25% í 8,80% og tekur breytingin í gildi í dag, 1. júní.
Vextir á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum lækka úr 4,80% í 3,60%. Breytingin tekur gildi fyrir útistandandi lán þann 1. júlí n.k.
Vextir á verðtryggðum lánum með föstum vöxtum eru óbreyttir, 4,50%
Hækkunin gildir um ný útlán sjóðsins, þegar veitt lán halda sínum vaxtakjörum þar til fastvaxtatímabili þess lýkur.
Lækkunin gildir um þegar veitt lán með breytilegum vöxtum sem kveða á um að vextir séu endurskoðaðir ársfjórðungslega.
Nánari upplýsingar um lán sjóðsins er að finna hér.