Innlendar sérhæfðar fjarfestingar

Innlendar sérhæfðar fjarfestingar

Eftirlaunasjóður félags íslenskra atvinnuflugmanna leggur áherslu á gagnsæi og að sjóðfélagar hafi greiðan aðgang að upplýsingum um starfsemi sjóðsins. Á vefsíðu EFÍA má finna lykilupplýsingar með helstu upplýsingum um rekstur og fjárfestingar.

Í þessari umfjöllun verður farið yfir hvernig sjóðurinn hefur nálgast uppbyggingu á innlendum sérhæfðum fjárfestingum ásamt því að stiklað verður á stóru um einstakar fjárfestingar. Sem langtímafjárfestir hefur EFÍA bæði svigrúm og möguleika til að byggja upp vel dreift eignasafn til lengri tíma.

Í því samhengi gegna innlendar sérhæfðar fjárfestingar mikilvægu hlutverki í heildarsamsetningu eigna safnsins, oft byggir ávöxtun þeirra á öðrum drifkröftum en til að mynda hefðbundnir skráðir fjármálagerningar og tengjast oft síður skammtímasveiflum á fjármála mörkuðum.

Með sérhæfðum fjárfestingum er yfirleitt átt við fjárfestingar sem eru frábrugðnar hefðbundnum hlutabréfa- og skuldabréfafjárfestingum að því leyti að þær eru oft óskráðar, með lengri binditíma og takmarkaðan seljan leika til skemmri tíma. Aðgengi fagfjárfesta, svo sem lífeyrissjóða, að þessum eignaflokki hefur bæði verið í formi beinnar fjárfestingar eða óbeinnar fjárfestingar í gegnum ýmiss konar form af sérhæfðum sjóðum.

Lesa grein

Egill Tryggvaon

    

Hjörleifur Arnar Waagfjörð