04. júní 2026
Niðurstaða kosninga um samþykktabreytingar og upplýsingar um stjórnarmenn 2026-2027
Kosningu um breytingar á samþykktum lauk kl. 13:00 fimmtudaginn 4. júní 2026.
Tillaga 1
- Lagt var til að breyta kosningafyrirkomulaginu þannig að eitt árið er kosið um þrjá aðalmenn og svo næsta ár kosið um þrjá varamenn. Vegna aðlögunar þarf að koma bráðabirgða ákvæði meðan ný grein tekur að fullu gildi.
Samþykkt með 86,52% greiddra atkvæða, 10,11% sögðu nei og 3,37% tóku ekki afstöðu.
Tillaga 2
- Lagt var til að afnema 1. og 2. mgr. í grein 4.6 og breyting gerð á 3. mgr. greinarinnar. Ástæða þessa er að EFÍA þarf ekki lengur að leita leiða til að tryggja áhættudreifingu vegna lífeyrisskuldbindinga sinna þar sem sjóðurinn hefur náð því marki að hafa fleiri en 800 sjóðfélagi í samræmi við 2. mgr. 21. gr. laga um lífeyrissjóði.
Samþykkt með 81,46% greiddra atkvæða, 11,80% sögðu nei og 6,74% tóku ekki afstöðu.
Tillaga 3
- Lagt var til að auka samræmi við aðra lífeyrissjóði að tillögu Landssambands Lífeyrissjóða. Um er að ræða atriði og árafjölda sem líta skal til þegar sjóðfélagi á rétt á framreikningi. Vinnuhópur á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða (LL) telur sanngirnismál að tekið sé tillit til sömu þátta hjá öllum lífeyrissjóðum varðandi 8 ára regluna. Gerð er tillaga að samræmingu þar sem tekið er fram að leggja skuli til grundvallar iðgjaldsgreiðslur 8 ár aftur í tímann ef þriggja ára meðaltal endurspeglar ekki venjubundnar greiðslur vegna sjúkdóma, slysa, barneigna og/eða atvinnuleysis. Því er lögð til breytingartillaga úr 6 árum í 8 ár með þeim rökum að þetta sé þá samræmt á milli sjóðanna með sanngirnissjónarmið í fyrirrúmi.
Samþykkt með 82,58% greiddra atkvæða, 11,80% sögðu nei og 5,62% tóku ekki afstöðu.
Tillaga 4
- Lagt var til að taka út gamlar réttindatöflur. Á ársfundi EFÍA 2024 samþykktu sjóðfélagar nýjar réttindatöflur sem tóku 1. janúar 2025. Þær er að finna í viðauka VII við samþykktirnar. Í samþykktunum eru enn þá gömlu réttindatöflurnar. Lagt er til að fella gömlu réttindatöflunum út úr samþykktunum þar sem þær eru orðnar úreltar.
Samþykkt með 92,13% greiddra atkvæða, 2,81% sögðu nei og 5,06% tóku ekki afstöðu.
Starfsárið 2026-2027 skipa eftirfarandi einstaklingar stjórn EFÍA
Aðalmenn kosnir af sjóðfélögum
- Sturla Ómarsson
- Kjartan Jónsson
- Salvör Egilsdóttir
Aðalmenn tilnefndir til eins árs:
- Sigrún Hjartardóttir
- Eva Brink
Varamenn kosnir af sjóðfélögum
- Arna Óskarsdóttir
- Gauti Sigurðsson
- Davíð Smári Jóhannsson
Varamenn tilnefndir til eins árs:
- Ari Guðjónsson