Við hjálpum þér að eignast heimili
Við lánum allt að 80% af kaupverði íbúðar og allt að 85% ef um fyrstu kaup er að ræða.

Við lánum allt að 80% af kaupverði íbúðar og allt að 85% ef um fyrstu kaup er að ræða.

Óverðtryggð lán hafa hærri mánaðarlega greiðslubyrði og hraðari eignamyndun á meðan verðtryggð lán hafa lægri mánaðarlega greiðslubyrði en hægari eignamyndun.
Annar möguleiki er að taka blandað lán sem sameinar þá kosti beggja lánategunda.
Verðtryggð lán eru tengd vísitölu neysluverðs og breytast því þegar verðlag á landinu hækkar eða lækkar.
Verðtryggð lán eru með föstum vöxtum í 3 ár í senn. Að loknu hverju 3ja ára tímabili hefur bankinn heimild til að endurskoða vextina og festa þá á ný fyrir næstu 3 ár. Síðustu 90 daga á hverju fastvaxtatímabili ber lánið ekki uppgreiðslugjald.
Óverðtryggð lán eru ekki tengd vísitölu neysluverðs og hækka því ekki með verðbólgu.
Óverðtryggð íbúðalán eru á föstum vöxtum í 3 ár eða breytilegum vöxtum út lánstímann. Lánstími getur verið allt að 40 ár. Verði lánið ekki endurfjámagnað fyrir lok fastvaxtatímabilsins taka við þeir breytilegu vextir sem eru í boði á þeim tíma að viðbættu föstu vaxtaálagi sem tilgreint er í skilmálum lánsins.
Fasteignamat
kr.
Markaðsvirði
kr.
Upphæð láns
kr.
%
%
Upphæð láns | |
Lánstími | |
Grunnvextir | |
Vaxtaálag | |
Vextir | |
Tegund vaxta | |
Greiðslumáti | |
Áætluð verðbólga | |
Veðhlutfall | |
Hentar þeim sem vilja nýta sér hagstæð lífeyrissjóðslán en þurfa viðbótarfjármagn til að kaupa nýtt eða endurfjármagna núverandi húsnæði.
Við reiknum út greiðslugetu þína á örfáum mínútum. Fyrsta skrefið er að nota rafræn skilríki til að heimila okkur að sækja upplýsingar um launatekjur, eignir og skuldir.

Lánaumhverfið er kannski hagstæðara nú en þegar þú tókst lán, sem gæti skilað sér í lægri vöxtum og greiðslubyrði.
Við bjóðum þeim sem eru að byggja sér húsnæði heildstæða fjármögnun, allt frá lóðarkaupum og þar til eign er orðin fullbyggð.
Ert þú með tekjur í erlendum gjaldmiðli? Við bjóðum íbúðalán fyrir fólk sem er með lögheimili erlendis eða er með erlendar tekjur og þarf að standast greiðslumat á Íslandi.

Þú færð 100% afslátt af lántökugjaldi á íbúðalánum ef þú kaupir umhverfisvottað íbúðarhúsnæði.
Staðfesting á því að eignin hafi verið vottuð af einum eftirtalinna aðila þarf að liggja fyrir:
Svansvottun
BREEAM – Very Good
LEED Gold
Fasteignalán henta þeim sem eru að kaupa ósamþykkt íbúðarhúsnæði, frístundahúsnæði eða sumarhús. Lánið kemur einnig til greina ef umsókn, eða veð, uppfyllir ekki kröfur um íbúðalán.
Við ákveðnar aðstæður getur komið sér vel að geta sótt um leyfi frá greiðslu á íbúðaláni.
Þegar greiðsluerfiðleikar koma upp er mikilvægt að bregðast hratt við og kanna hvaða úrræði eru í boði til að greiða úr málunum.
Til að auðvelda fyrstu kaup lánum við allt að 85% af markaðsvirði eignar og veitum jafnframt 100% afslátt af lántökugjaldi.
Við bjóðum nýbökuðum foreldrum að lækka greiðslurnar sínar um allt að helming meðan á fæðingarorlofi stendur.
Þegar þú setur greiðslufestu á lánið þitt greiðir þú fasta upphæð í tólf mánuði, sem er lægri en mánaðarleg greiðsla samkvæmt skilmálum lánsins.

Við viljum að þú njótir góðs af því að vera með fjármálin og tryggingarnar á sama stað. Það eina sem þú þarft að gera er að ná í Arion appið, smella á Meira og svo á Mínar tryggingar. Ef þér líst vel á tilboðið klárar þú kaupin með einum smelli. Þetta er svona einfalt.
Trygging sem veitir fjölskyldum hugarró með því að tryggja greiðslu á afborgunum og vöxtum lánsins í tiltekinn tíma.
Líftryggingin er í boði fyrir þá sem taka ný íbúðalán hjá Arion.

Að velja rétta íbúðalánið er stór ákvörðun sem hefur áhrif á fjárhag heimilisins til margra ára. Því er mikilvægt að skilja hvernig val á lánstíma og tegund lána getur breytt bæði greiðslubyrði og heildarkostnaði. Hvort lánið er verðtryggð eða óverðtryggð, og hversu langur lánstíminn er, getur haft veruleg áhrif á greiðslubyrði og eignarmyndun.

Þegar greiðslugetan hefur verið könnuð og útborgun tryggð þá er komið að því að finna draumaeignina. Það ferli getur tekið mislangan tíma en mikilvægt er að vanda valið og finna þá eign sem er með flesta þá eiginleika sem leitað er að.
Flestir eru með mjög skýrar hugmyndir um hvernig íbúð er leitað að og hvaða skilyrði hún þarf að uppfylla en það er gott að hafa það í huga að það þarf ekki að vera að íbúð finnist sem uppfyllir allar óskir. Við kaup á fyrstu fasteign þarf oft að forgangsraða eiginleikum og velja þá eign sem tikkar í flest boxin ef ekki finnst eign á réttu verði sem uppfyllir allt saman.

Þegar nýtt lán er tekið getur það skipt sköpum á hversu löngum tíma greiða skal lánið til baka. Það er misjafnt hver hámarkstími lána getur verið en lengst er lánað fyrir fasteignakaupum til 40 ára.

Það er erfitt að segja til um hvort það henti þér að leigja eða kaupa og þar ráða helst ferðinni þín fjárhagsstaða og þín fjárhagslegu markmið. Þú skalt reikna hvoru tveggja til enda áður en þú tekur ákvörðun. Ef stefnan er tekin á fasteignakaup eru nokkur mikilvæg atriði sem gott er að kynna sér og hafa á hreinu áður en af stað er farið.
Óverðtryggð lán bjóðast til allt að 40 ára. Verðtryggð lán bjóðast til allt að 30 ára.
Í boði eru óverðtryggðir breytilegir vextir út lánstímann eða óverðtryggðir fastir vextir í þrjú ár sem fara að fastvaxtatíma loknum yfir á óverðtryggða breytilega vexti.
Verðtryggð lán bjóðast á föstum vöxtum til þriggja ára og að þeim tíma liðnum fá lánin sömu vexti og sambærileg ný lán fá.
Veð er alltaf í íbúðarhúsnæði.
Íbúðalán eru alla jafna ýmist með jöfnum greiðslum eða jöfnum afborgunum.
Þú getur endurfjármagnað lán með jöfnum útborgunum og valið jafnar greiðslur. Þá er tekið tillit til greiðslumats eins og þegar hefðbundin endurfjármögnun íbúðalána á sér stað.
Hvað eru jafnar greiðslur?
Jafnar greiðslur virka þannig að þú greiðir u.þ.b. sömu heildarupphæð í hverjum mánuði út lánstímann.
Greiðslan samanstendur af:
Höfuðstólsgreiðslu
Vöxtum
Verðbótum (ef lánið er verðtryggt)
Til að byrja með er greiðslubyrði yfirleitt lægri heldur en af láni með jöfnum afborgunum, en höfuðstóllinn lækkar hægar.
Hvað eru jafnar afborganir?
Jafnar afborganir virka þannig að þú greiðir sömu upphæð af höfuðstólnum út lánstímann.
Greiðsla samanstendur af:
Höfuðstólsgreiðslu
Vöxtum
Verðbótum (ef lánið er verðtryggt)
Til að byrja með er greiðslubyrði yfirleitt hærri en af láni með jöfnum greiðslum. Höfuðstóllinn lækkar þó hraðar og greiðslubyrðin í takt við það.
Það er ekkert uppgreiðslugjald á lánum með breytilegum vöxtum.
Lán með fasta vexti geta verið með uppgreiðslugjald.
Ekki þarf að greiða uppgreiðslugjald þegar eftirfarandi á við:
Vextir á sambærilegum íbúðalánum með föstum vöxtum, sem bankinn býður á þeim tíma, eru jafnháir eða hærri en vextirnir á láninu sem greiða á upp.
Síðustu 90 daga á hverju fastvaxtatímabili verðtryggðra lána ber lánið ekki uppgreiðslugjald.
Greiðslur nema lægri fjárhæð en 1.000.000 kr. á hverju almanaksári.
Greiða þarf uppgreiðslugjald þegar eftirfarandi á við:
Lán er greitt upp á því tímabili sem lánið er á föstum vöxtum og vextir á sambærilegum lánum með föstum vöxtum, sem bankinn býður á þeim tíma, eru lægri en vextirnir á láninu sem greiða á upp.
Uppgreiðslugjald reiknast samkvæmt eftirfarandi forsendum:
Uppgreiðslugjald má ekki fara yfir 0,2% af fjárhæð endurgreiðslu fyrir hvert heilt ár sem eftir stendur af binditíma vaxta fasteignaláns, þó aldrei hærri fjárhæð en nemur kostnaði bankans af endurgreiðslunni eða 1% af endurgreiðslu.
Uppgreiðslugjaldið byggist á hlutlægum grunni vegna kostnaðar sem bankinn verður fyrir og tengist beint greiðslu af láninu sem gerð er fyrir umsaminn gjalddaga.
Nánari upplýsingar um uppgreiðslugjald á lánum sem þegar hafa verið veitt er að finna í verðskrá Arion banka, en mismunandi reglur gilda eftir því á hvaða tíma lán var gefið út.
Önnur gjöld eru samkvæmt verðskrá Arion banka á hverjum tíma.
Íbúðalánum getur verið skipt í tvö lán eftir veðsetningarhlutfalli eignar.
Á Grunnlán er gerð krafa um 1. veðrétt og hámarksveðhlutfall er 70% af fasteignamati eða markaðsverði eignar þ.e. því sem lægra reynist.
Viðbótaríbúðalán er lán veitt frá 70% veðsetningu. Það er eingöngu í boði sem óverðtryggt íbúðalán.
Kaupsamningur: Íbúðalán II fer á 2. veðrétt á eftir Íbúðaláni I og hámarksveðhlutfall er 80% m.v. kaupsamning (85% ef fyrstu kaup).
Endurfjármögnun: Íbúðalán II fer á 2. veðrétt á eftir Íbúðaláni I og hámarksveðhlutfall er 80% m.v. fasteignamat.
Ef lánsfjárhæð er hærri en 50 m.kr. áskilur bankinn sér rétt til að gera auknar kröfur vegna lánveitingar.
Lántökugjald er skv. verðskrá
Þinglýsingargjald er skv. verðskrá Sýslumannsembættis
Önnur gjöld vegna lántöku, t.d. greiðslumat og skjalagerð, eru skv. verðskrá hverju sinni
Nei, en í sumum tilfellum eru veitt fasteignalán upp að ákveðnu veðhlutfalli. Hver lánsumsókn vegna ósamþykktra íbúða er metin sérstaklega.
Nei, lánað er út frá fasteignamati og fellur þar af leiðandi ekki til kostnaður vegna verðmats.
Ekki er hægt að segja fyrir um slíkt. Vaxtastig tekur breytingum og hafa fjölmargir þættir áhrif á það. Vextir lána með breytilega vexti geta því ýmist hækkað eða lækkað en fastir vextir haldast óbreyttir. Þegar vaxtastig hækkar, þá er hagkvæmara að vera með fasta vexti en þegar vaxtastig lækkar er hagkvæmara að vera með breytilega vexti.
Lánin eru einungis ætluð einstaklingum sem kaupa eða endurfjármagna húsnæði til eigin nota, en ekki til útleigu eða t.d. fyrir einkahlutafélög eða aðra rekstraraðila. Skilyrði er að hafa lögheimili í eigninni. Ekki er gerð krafa um að lántakendur séu í viðskiptum við bankann.
Íbúðalán er hægt að nota við kaup á íbúðarhúsnæði til eigin nota eða til endurfjármögnunar á eldri lánum. Í raun má nota endurfjármögnunarlánið hvernig sem lántakanda hentar, til að fjármagna viðgerðir eða endurbætur, greiða upp eldri óhagstæðari lán, yfirdrátt eða aðrar skuldir.
Þegar einstaklingur og sjóður kaupa eign saman, sem einstaklingurinn ætlar að nýta til eigin nota, þá standa til boða verðtryggð íbúðalán til hámark 25 ára eða óverðtryggð íbúðalán til hámark 40 ára.
Við endurfjármögnun er greitt lántökugjald, greiðslumatsgjald, skjalagerðargjald og þinglýsingargjald. Það er misjafnt hvort lánastofnun krefst uppgreiðslugjalds.
Ef ekki er staðið við skuldbindingar samkvæmt samningi verður lántakandi krafinn um að greiða dráttarvexti vegna vangoldinna greiðslna. Einnig verður lántakandi krafinn um að greiða allan kostnað sem kann að koma til vegna vanskila, t.d. vegna innheimtubréfa, málsókna eða annarra réttargjalda, lögmannsþóknunar, svo og annan lögfræðilegan kostnað vegna innheimtu skuldarinnar. Þá geta vanskil orðið til þess að allt lánið verður gjaldfellt og sett í lögfræðilega innheimtu sem getur leitt til þess að veðtrygging verður seld á nauðungaruppboði.