Ætlar þú nokkuð að missa af launabónus?
Það hljómar ekkert eðlilega vel að fá allt að 35.000 kr. á ári beint inn á reikninginn sinn!

Það hljómar ekkert eðlilega vel að fá allt að 35.000 kr. á ári beint inn á reikninginn sinn!

Ef þú ert í Arion framtíð, með heilsupakka og viðbótarlífeyrissparnað getur þú fengið allt að 35.000 kr. á hverju ári frá okkur.
Þetta er svona einfalt.

Bónusinn er jafnhár mótframlaginu sem vinnuveitandi greiðir í viðbótarsparnað, eða a.m.k. 2% af mánaðarlaunum.

Launabónusinn safnast síðan upp yfir árið og losnar um leið og þú endurnýjar heilsupakkann fyrir næsta tímabil.*

Þú getur fengið allt að 35.000 kr. í launabónus á ári. Þú segir ekki nei við því!
*Þú þarft að að greiða heilsupakkann í 12 mánuði samfleytt, þegar þú greiðir fyrir 13. mánuðinn losnar Launabónusinn og leggst inn á ráðstöfunarreikning.
ISK
mo. per year
144.000 kr.
| Fjöldi mánaða | 72 mánuðir |
| Launabónus | 2% |
| Hámark á ári | 35.000 kr. |

Í fyrstu virðist það kannski ekki mikil breyting á lífinu að verða 18 ára. Það er eins að vakna 17 ára og 18 ára og verkefni dagsins eru þau sömu. Lagalega er þó mjög mikill munur á milli þessara tveggja daga og það er ótalmargt sem breytist þegar klukkan slær miðnætti á síðasta degi sautjánda aldursársins.

Varstu að byrja í fyrstu vinnunni? Til hamingju með það! Það er stórt skref að hefja störf á fyrsta vinnustaðnum og margt sem hafa þarf í huga. Við tókum saman nokkur hagnýt ráð sem gott er að hafa á bak við eyrað.

Að flytja að heiman eru stór skref í lífi hverrar manneskju. Að fara úr vernduðu umhverfi foreldrahúsa í ábyrgðina sem fylgir því að reka heimili vex mörgum í augum þrátt fyrir að flestir séu spenntir fyrir því.

Það er aldrei of seint að byrja að spara. Hins vegar getur verið svolítið erfitt að gera einmitt það: Að byrja. Því að stóra spurningin er …
… hvar byrjar maður eiginlega?

Katrín Lára Sigurðardóttir er ungur sérfræðingur hjá Arion banka og kveðst hafa byrjað snemma að spara sér fyrir fyrstu íbúðinni sinni.

Hagfræðihugtök geta oft virst flókin og erfitt að átta sig á hvað þau raunverulega þýða. Þau birtast reglulega í fréttum og umræðu um efnahagsmál, en margir vita ekki alveg hvað felst á bak við þau. Við viljum hjálpa þér að skilja algeng hugtök sem gott er að þekkja, eins og verðbólgu, stýrivexti, hagvöxt og verðtryggingu.

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Þegar fjölskyldan stækkar fylgir því bæði gleði og nýjar áskoranir. Þá er gott að huga að fjármálum heimilisins tímanlega, því barn í vændum kallar á breytingar bæði í tekjum og útgjöldum. Það er þó snjallt að huga að fjármálunum áður en ákveðið hefur verið að fjölga í fjölskyldunni því gott er að hafa myndað varasjóð til þess að brúa fjárhagslega bilið sem myndast í fæðingarorlofi.

Að eignast sína fyrstu íbúð er spennandi áfangi, en ferlið getur verið flókið og krefjandi. Þar sem íbúðakaup eru ein stærsta fjárfesting lífsins er lykilatriði að hefja sparnað snemma. Það tekur nefnilega tíma að safna nægu eigin fé til útborgunar, en með góðu skipulagi og réttu úrræðunum getur þú flýtt fyrir ferlinu.

Þegar stefnt er á nám á Háskólastigi vilja flestir geta einbeitt sér að fullu að náminu og minnka við sig vinnu að miklu eða öllu leyti. Til þess að það gangi upp er nauðsynlegt að tryggja framfærslu nemandans og fjölskyldu hans á meðan á náminu stendur. Einn af þeim möguleikum sem eru fyrir hendi er að sækja um námslán.

Þegar greiðslugetan hefur verið könnuð og útborgun tryggð þá er komið að því að finna draumaeignina. Það ferli getur tekið mislangan tíma en mikilvægt er að vanda valið og finna þá eign sem er með flesta þá eiginleika sem leitað er að.
Flestir eru með mjög skýrar hugmyndir um hvernig íbúð er leitað að og hvaða skilyrði hún þarf að uppfylla en það er gott að hafa það í huga að það þarf ekki að vera að íbúð finnist sem uppfyllir allar óskir. Við kaup á fyrstu fasteign þarf oft að forgangsraða eiginleikum og velja þá eign sem tikkar í flest boxin ef ekki finnst eign á réttu verði sem uppfyllir allt saman.

Það kostar sitt að kaupa og reka bíl – og því margborgar sig að ráðast í svolitla heimildarvinnu áður en gengið er frá kaupum og sest undir stýri á nýja farartækinu. Hér koma nokkur hagnýt ráð sem vonandi nýtast í leitinni að draumabílnum.

Að flytjast að heiman markar stórt skref í lífi okkar flestra. Við segjum skilið við verndað umhverfi foreldrahúsanna og vöknum skyndilega á heimili þar sem enginn minnir okkur á að setja alla skítugu sokkana í vélina, fylla á ísskápinn og salta tröppurnar þegar frýs yfir nóttina. Við berum ábyrgð á öllu heimilishaldinu sjálf – þar með talið fjármálunum.

Það getur virst yfirþyrmandi að stíga fyrsta skrefið inn á fasteignamarkaðinn. Ferlið virðist flókið og kostnaðarsamt, en ófáir hafa þó klifið þetta fjall en fyrsta skrefið er að skilja ferlið og hvað í því felst.

Það er mjög algengt að einstaklingum fallist hendur þegar kemur að því að fjárfesta og ýmsir standa í þeirri trú að það sé eingöngu sérmenntað fólk í fjárfestingum og fagfjárfestar sem geta fjárfest. Það er algengur misskilningur að ferlið sé gríðarlega flókið og ekki fyrir hvern sem er að stunda. Þetta er allt saman fjarri sanni því hver sem er getur tekið fyrstu skrefin í fjárfestingum og getur það verið vænlegur kostur fyrir þá sem vilja ávaxta sína fjármuni.