Allt fyrir fjármálastjórann - kona í tölvu

Hvernig byrja ég að fjár­festa?

Greiddu niður dýrar skammtímaskuldir

Áður en farið er af stað í fjárfestingar eru þó nokkur skref sem vert er að taka í eigin fjármálum til þess að undirbúa jarðveginn. Gott er að greiða niður dýrar skammtímaskuldir svo sem yfirdrátt, greiðsludreifingu kreditkorta og aðrar neysluskuldir áður en farið er af stað í fjárfestingar. Þegar því er lokið er ekki úr vegi að eiga smá varasjóð til að mæta óvæntum útgjöldum. Að því loknu er mikilvægt í upphafi að fjárfesta eingöngu þeirri upphæð sem þú mátt við því að missa. Við segjum það ekki vegna þess að líklegt sé að þú munir tapa fjármununum heldur til þess að þú getir áhyggjulaus notið þess að læra inn á fjárfestingar og vanist ferlinu og umhverfinu.

Ekki setja öll eggin í sömu körfuna

  • Dreifðu eignasafninu þínu á fleiri en eitt fyrirtæki eða sjóði.
     

  • Fjárfestu í því sem þú þekkir og skilur. Leitaðu þér þekkingar og kynntu þér þau félög sem þú ert að velta fyrir þér að fjárfesta í.
     

  • Vertu áskrifandi að sjóði en það getur verið sniðug leið til þess að komast inn á markaðinn. Þá seturðu fjármuni þína í sjóð sem fagmenn sjá um að ávaxta. Þannig er minni krafa á þér að þekkja markaðinn inn og út en þú ert samt sem áður þátttakandi í markaðnum.
     

  • Aflaðu þér þekkingar og ræddu fjárfestingar við vini, samstarfsfólk og fjölskyldu.
     

  • Settu þér markmið með fjárfestingunum. Viltu ávöxtun á skömmum tíma eða viltu að upphæðin ávaxtist yfir lengra tímabil.
     

  • Vertu á hverjum tíma með yfirsýn yfir eignastöðu og áhættuþol.


Fyrsta skrefið er að stofna vörslusafn

Nú þegar þú hefur kynnt þér vel möguleika á markaðnum og sett þér markmið með fjárfestingunum er komið að því að fjárfesta sjálfum fjármununum. Það gerirðu með því að fara í netbankann eða appið og stofna vörslusafn. Vörslusafn er líkt og bankareikningur fyrir fjárfestingar í sjóðum og fyrir kaup og sölu á hlutabréfum og skuldabréfum. Til þess að stofna vörslusafn þarftu að undirrita samning við Arion banka um meðhöndlun þeirra fjármuna sem þú setur í sjóði og verðbréf og svara spurningum um þekkingu þína á verðbréfaviðskiptum.

Í gegnum vörslusafnið geturðu svo ákveðið hvernig hlutabréf þú vilt kaupa eða í hvers konar sjóðum þú vilt fjárfesta. Mikilvægasta skrefið er fyrsta skrefið og hafðu í huga að þú þarft ekki að fjárfesta háum upphæðum til að komast inn á markaðinn. Einn af frægustu fjárfestum í heimi, Warren Buffet, byrjaði að fjárfesta lágum upphæðum á unga aldri en hann er í dag einn af farsælustu fjárfestum heims.

Byrjaðu og lærðu af reynslunni!

Með góðum undirbúningi muntu fljótt sjá hvernig þú vilt haga þínum fjárfestingum. Ekki þó gleyma að sem einkennir og sameinar alla farsæla fjárfesta er að á einhverjum tímapunkti ákváðu þeir að byrja og gerðu sína fyrstu fjárfestingu. Ekki hræðast mistök heldur lærðu af þeim og reyndu að skilja hvers vegna niðurstaðan varð ekki sú sem þú vonaðist eftir. Þú þarft heldur ekki að hika við að leita ráða og ræða fjárfestingar við vini og vandamenn og að sjálfsögðu geturðu alltaf leitað til ráðgjafa okkar með þær spurningar sem kunna að vakna.

Æfðu þig að fjárfesta í Dyngju-appinu

Ef þú hefur áhuga á fjárfestingum en langar að kynna þér umhverfið áður en þú tekur skrefið geturðu prófað Dyngju appið. Dyngju appið er smáforrit sem gerir fólki kleift að spreyta sig á íslenska hlutabréfamarkaðnum án þess að taka óþarfa áhættu. Í appinu geta notendur stundað sýndarviðskipti á íslenska hlutabréfamarkaðnum með gervigjaldmiðlinum vISK.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira
Húsfélög og Félagasamtök

Hvernig getur yngra fólk sparað sér fyrir íbúð?

Katrín Lára Sigurðardóttir er ungur sérfræðingur hjá Arion banka og kveðst hafa byrjað snemma að spara sér fyrir fyrstu íbúðinni sinni.

Lesa meira