Sumarhúsatrygging Varðar

Að kaupa fyrstu fast­eign

Hvernig kaupirðu þína fyrstu fasteign?

Það getur virst yfirþyrmandi að stíga fyrsta skrefið inn á fasteignamarkaðinn. Ferlið virðist flókið og kostnaðarsamt, en ófáir hafa þó klifið þetta fjall en fyrsta skrefið er að skilja ferlið og hvað í því felst.

Kaup á fasteign eru oft stærsta fjárfesting lífsins og mikilvægt að undirbúa sig vel. Best er að byrja að huga að fasteignakaupum nokkrum árum áður en þau munu eiga sér stað.

Þau atriði sem mikilvægast er að kynna sér eru annars vegar sparnaður og útborgun og hins vegar lánamöguleikar.

Sparnaður og útborgun

Fyrir kaup á fyrstu fasteign gilda eftirfarandi reglur.

  • Útborgun í minnsta lagi 15% af kaupverði

  • Lán að hámarki 85% af kaupverði

Með útborgun er átt við fjármuni sem þú hefur safnað og getur greitt beint út. Því fyrr sem hugað er að sparnaði því betra, því miklu getur munað um vexti og verðbætur. Til móts við eigin sparnað er hægt að sækja um að nýta uppsafnaðan séreignasparnað í útborgun við fyrstu fasteignakaup. Þetta þýðir að þú getur nýtt hluta af viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst upp í útborgun á fyrstu fasteigninni sem þú kaupir. Ef þú byrjar strax að greiða í viðbótarlífeyrissparnað getur munað miklu um þessa upphæð. Þetta er að sjálfsögðu háð þeirri reglugerð sem er í gildi þegar þessi grein er skrifuð og gætu þær reglur breyst í framtíðinni.

Lánamöguleikar og reglur Seðlabankans

Upphæðin á því láni sem hægt er að sækja um ræðst einkum af greiðslugetu og reglum sem Seðlabankinn hefur sett um annars vegar hversu háu hlutfalli kaupverðs má lána fyrir og einnig hversu háu hlutfalli af mánaðarlegum ráðstöfunartekjum fólks má ráðstafa í fasteignalán. Reglurnar þegar þessi grein er skrifuð segja til um það að greiðslubyrði húsnæðisláns má að hámarki vera 40% af tekjum heimilisins eftir skatt, þegar um er að ræða fjármögnun kaupa á fyrstu fasteign. Þessar reglur eru settar til þess að hjálpa einstaklingum að ráða vel við afborganir og framfærslu og reyna að forða fólki frá því að spenna bogann of hátt.

Hvað er hlutdeildarlán?

Hlutdeildarlán er sérstök tegund lána sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun veitir annars vegar þeim sem kaupa sína fyrstu fasteign og hins vegar einstaklingum sem eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum. Hlutdeildarlán bera enga vexti og af þeim eru engar afborganir.

Hlutdeildarlán eru eingöngu veitt til kaupa á nýjum íbúðum þar sem samningur liggur fyrir á milli Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og byggingaraðila eignarinnar. Í einhverjum tilvikum er einnig hægt að fá lán fyrir eldri íbúðum sem teknar hafa verið í gegn á þann hátt að þær eru í sama ástandi og nýjar eignir. Á fasteignavefjum er oft hægt að haka við þann möguleika að leita eingöngu eftir eignum sem eru lánshæfar til hlutdeildarlána.

Greiðslumat - hvað ræður lántökumöguleikum?

Til þess að kanna greiðslugetuna þarf að framkvæma greiðslumat, en það er ferli sem hægt er að klára á nokkrum mínútum á vef Arion banka. Áður en greiðslumat er gert er hægt að áætla greiðslugetuna með því að gefa upp tekjur og fjárhagslegar skuldbindingar. Áætlun á greiðslugetu er hægt að gera með því að smella (hér). Hafið í huga að endanlegt greiðslumat tekur alltaf mið af þeim reglum sem Seðlabankinn hefur sett um það hlutfall af ráðstöfunartekjum sem leyfilegt er að ráðstafa í afborganir af íbúðalánum. Arion banki tekur eingöngu mið af tekjum sem greiddur er skattur af þegar greiðslumat er gert. Skattfrjálsar tekjur líkt og bifreiðastyrkur sem undanskilinn er skatti eru því ekki hluti af greiðslumatinu.

Þegar jákvætt greiðslumat er komið ætti að vera ljóst hvað þú ræður við að greiða af láninu mánaðarlega og þá er hægt að setja þær forsendur inn í reiknivél hér á síðunni til þess að kanna mismunandi lánamöguleika miðað við það kaupverð fasteignar sem þú hefur í huga.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira
Húsfélög og Félagasamtök

Hvernig getur yngra fólk sparað sér fyrir íbúð?

Katrín Lára Sigurðardóttir er ungur sérfræðingur hjá Arion banka og kveðst hafa byrjað snemma að spara sér fyrir fyrstu íbúðinni sinni.

Lesa meira