
Að eignast barn
Þegar fjölskyldan stækkar fylgir því bæði gleði og nýjar áskoranir. Þá er gott að huga að fjármálum heimilisins tímanlega, því barn í vændum kallar á breytingar bæði í tekjum og útgjöldum. Það er þó snjallt að huga að fjármálunum áður en ákveðið hefur verið að fjölga í fjölskyldunni því gott er að hafa myndað varasjóð til þess að brúa fjárhagslega bilið sem myndast í fæðingarorlofi.
Greiðslur í fæðingarorlofi
Það er margt sem breytist við komu barns og sumum virðist sem heimurinn hafi hreinlega snúist á hvolf. Það eru ekki bara útgjöldin sem aukast heldur eru tekjur oft minni fyrstu mánuðina eftir komu barns þar sem fæðingarorlofsgreiðslur eru oftast ekki jafnháar þeim launagreiðslum sem þær koma í staðinn fyrir.
Á heimasíðu fæðingarorlofssjóðs er hægt að lesa sér nánar til um reglur varðandi fæðingarorlof en lengd orlofsins er samtals 12 mánuðir sem skiptast jafnt á milli foreldra og eru 6 vikur af þeim mánuðum framseljanlegar til hins foreldris. Ef foreldri er einstætt er réttur þess til fæðingarorlofs 12 mánuðir. Greiðslur í fæðingarorlofi eru 80% af launum foreldris þó aldrei hærri en 600 þúsund fyrir skatt.
Sparnaður sem vex
Ein besta gjöfin sem foreldrar geta gefið barni sínu er sparnaður sem vex allt frá fæðingu. Við bjóðum upp á framtíðarreikning sem er verðtryggður innlánsreikningur og er innistæða hans laus til útborgunar við 18 ára aldur. Reikningurinn er því tilvalinn fyrir reglubundinn sparnað, afmælispeningana og tækifærisgjafir, enda er það gott veganesti inn í lífið að kenna börnum að spara frá fyrstu tíð.
Í Arion appinu getur þú einnig stofnað áskrift í sjóðum fyrir barnið þitt. Þú velur einfaldlega upphæðina sem þér hentar, en það er ekkert lágmark og enginn kostnaður við kaup eða sölu. Í appinu hefurðu síðan ávallt góða yfirsýn yfir stöðuna á eign barnsins.
Þú getur sent íbúðarlánið í fæðingarorlof
Þeir sem sjá fram á að eiga erfitt með að standast fjárhagslegar skuldbindingar sínar í fæðingarorlofinu geta til sótt um að greiðslur á íbúðaláni hjá Arion banka lækki um allt að helming á meðan á fæðingarorlofi stendur. Eftirstöðvarnar leggjast þá við höfuðstól lánsins. Það er því mikilvægt að verðandi foreldrar setjist niður og ræði fjármálin og fái ráðgjöf um næstu skref.
Tryggingar fyrir það sem er þér kærast
Það er gott að skoða tryggingar fjölskyldunnar vel þegar barn er á leiðinni. Margir vilja breyta líf- og sjúkdómatryggingum sínum þegar þeir bera ábyrgð á lífi og heilsu barna og vilja tryggja fjárhagslegan stöðugleika þeirra við veikindi eða andlát foreldra. Vörður býður uppá fjölbreyttar tryggingar fyrir fjölskylduna.
Einnig er vert að skoða að tryggja börnin fyrir hugsanlegum áföllum vegna slysa og veikinda sem geta haft varanlegar afleiðingar fyrir heilsu þeirra og hamingju.


