Stock exchange press release

10.03.2025

Skráningu á aðalfund Arion banka lýkur þriðjudaginn 11. mars 2025 klukkan 16:00

Aðalfundur Arion banka hf. verður haldinn í höfuðstöðvum bankans að Borgartúni 19, 105 Reykjavík, þann 12. mars 2025, kl. 16:00. Einnig verður gefinn kostur á rafrænni þátttöku. Atkvæðagreiðsla á fundinum fer eingöngu fram með rafrænum hætti. Fundurinn fer fram á íslensku en boðið verður upp á túlkaþjónustu á ensku.

Til þess að hægt sé að tryggja tímanlega úrvinnslu á beiðnum hluthafa um aðgangsupplýsingar skulu þeir óska eftir aðgangi á vefsíðunni https://www.lumiconnect.com/meeting/arionbankagm2025 eigi síðar sólarhring fyrir fundinn, eða kl. 16:00 þann 11. mars 2025. Sama gildir ef hluthafar vilja leggja fram skriflegar spurningar varðandi dagskrá eða framlögð skjöl sem þeir óska svara við á fundinum. Þær skulu sendar á netfangið hluthafar@arionbanki.is en einnig er hægt að senda póst á sama netfang fyrir almennar fyrirspurnir í tengslum við aðalfundinn.

Tillögurbreytingartillaga, dagskrátillögur tilnefningarnefndar og önnur skjöl eru aðgengileg á www.arionbanki.is/gm.

Frá og með lokun markaða 4. mars 2025 til og með 14. mars 2025 verður óheimilt að yfirfæra SDR-heimildarskírteini í eða úr hlutum í Arion banka milli markaða.

BACK