Einfaldara líf með netbankanum
Með netbankanum getur þú sinnt fjármálunum þínum á einfaldan og öruggan hátt, hvar og hvenær sem er.

Með netbankanum getur þú sinnt fjármálunum þínum á einfaldan og öruggan hátt, hvar og hvenær sem er.

Það hefur aldrei verið einfaldara að sinna fjármálunum. Netbankinn er opinn allan sólarhringinn þar sem þú getur framkvæmt örugg og þægileg bankaviðskipti hvar og hvenær sem er.
Fylgstu með stöðu reikninga og korta í netbankanum og framkvæmdu millifærslur fljótt og örugglega.
Í netbankanum getur þú fylgst með stöðunni á lífeyrissparnaðinum þínum.
Þú getur sinnt erlendum millifærslum í netbankanum á einfaldan hátt, alla virka daga frá kl. 9–16.
Viltu fá að vita þegar launin þín eru komin? Eða þegar staðan fer undir ákveðna upphæð? Það er ekkert mál, þú velur hvaða tilkynningar þú færð sendar.
Með innheimtuþjónustu sparast bæði tími og peningar þar sem þú getur hvenær sem er skráð, breytt og/eða fellt niður kröfur í netbankanum.
Það er einfalt að stofna nýtt kort í netbankanum. Berðu saman kortin og finndu það sem hentar þér best.

Arion appið er besti kosturinn fyrir snjalltæki. Í appinu getur þú sinnt öllum helstu bankaviðskiptum á einfaldan og öruggan hátt.