Innskráning í netbankann

Auðkenning notenda í netbankanum er annaðhvort staðfest með rafrænum skilríkjum eða sms auðkenningu.

Rafræn skilríki

Rafræn skilríki eru einföld og örugg leið til auðkenningar og undirritunar í rafrænum heimi.

Rafræn skilríki eru virkjuð í útibúum okkar um allt land.

Gjald fyrir virkjun rafrænna skilríkja er 1.100 kr. en virkjunin er viðskiptavinum Arion banka að kostnaðarlausu.

Nánar um rafræn skilríki

Auðkenning með SMS

SMS auðkenning er hentug innskráningarleið fyrir þá sem kjósa að notast ekki við rafræn skilríki. SMS auðkenningu er hægt að nota á innlend og erlend farsímanúmer

Símanúmer fyrir SMS auðkenningu er skráð í netbankanum undir Stillingar en þar er landsnúmer valið og símanúmer skráð. Við skráningu sendist SMS með staðfestingarkóða í skráð símanúmer. Þegar símanúmer hefur verið staðfest þá er hægt að framkvæma innskráningu í netbankann með notendanafni, lykilorði og SMS auðkenningu

Arion banki tekur ekki gjald fyrir SMS auðkenningu.

App auðkenning

App auðkenning gerir notendum kleift að auðkenna sig í netbanka og Arion appi með auðkennisnúmeri sem birtist í auðkenningarappi í snjalltækjum. Hvert auðkennisnúmer virkar í 30 sekúndur og að þeim liðnum verður til nýtt númer.

Auðkenningin er óháð símasambandi og ætti því m.a. að henta þeim aðilum sem nota netbankann þar sem ekki er símasamband.

Virkjun App auðkenningar
 

1.

Þú sækir auðkenningarapp í App Store eða Google Play Store. Dæmi: Google Authenticator, Microsoft Authenticator. Þessi öpp hafa engan aðgang að upplýsingum um netbankanotendur Arion banka.


 

2.

Skráðu þig inn í netbankann og veldu Stillingar > App auðkenning.


 

3.

Staðfestu þig með lykilorði eða rafrænum skilríkjum.

 

4.

Á skjánum birtist QR kóði og skráningarlykill. Þú getur valið um að skanna QR kóðann í auðkenningarappi eða slá inn skráningarlykilinn.


 
  

5.

Að því loknu birtist auðkennisnúmer netbanka Arion banka í auðkenningarappinu.


 

6.

Þú slærð inn auðkennisnúmerið og smellir á Virkja.


 

7.

Þá birtist Þú hefur virkjað App auðkenningu og því getur þú notað auðkennisnúmer úr auðkenningarappi við innskráningu og auðkenningu í netbanka og appi Arion banka.


 

8.

Þú getur alltaf afvirkjað App auðkenningu netbankans undir 
Stillingar > App auðkenning.

 
Innskráning með App auðkenningu
  1. Notandanafn slegið inn
  2. Lykilorð slegið inn
  3. Auðkenningarapp notað
  4. Auðkennisnúmer úr auðkenningarappi slegið inn
English instructions

App authentication instructions