Sveigjanleiki fyrir hið óvænta


Þú getur sótt um, breytt og fellt niður yfirdráttarheimild í Arion appinu. Engar fastar afborganir eru af heimildinni heldur greiðir þú eingöngu vexti af þeirri upphæð sem þú notar hverju sinni. Þannig getur þú hagað endurgreiðslunni eftir þínum þörfum.


Getur nýst ef þú þarft að brúa bilið í stuttan tíma
Þú greiðir ekkert lántöku-, stimpil- eða uppgreiðslugjald
Heimildin er veitt til allt að 12 mánaða

Lánaheimild segir til um hversu hátt lán þú getur tekið.
Í Arion appinu getur þú skoðað hver lánaheimildin þín er. Heimildin er reiknuð reglulega og byggir á þinni viðskipta- og fjárhagsstöðu.
Þú getur skipt lánaheimildinni niður, þ.e. á milli mismunandi leiða, s.s. yfirdráttar- og kreditkortaheimildar eða Núláns.