Einkabankaþjónusta

Einkabankaþjónusta er sérsniðin eignastýring og bankaþjónusta fyrir efnameiri viðskiptavini, fyrirtæki, sjóði og stofnanir.

Víðtæk fjármálaþjónusta fyrir efnameiri einstaklinga, fyrirtæki, sjóði og stofnanir.

Persónuleg þjónusta

Einkabankaþjónusta Arion banka býður efnameiri einstaklingum og lögaðilum upp á sérsniðna fjármálaþjónustu.  Hver viðskiptavinur hefur sinn eigin viðskiptastjóra sem sér um eignasafnið og fjárfestir með markmið hans að leiðarljósi. Viðskiptastjóri fylgist náið með hreyfingum á markaði og gerir breytingar samkvæmt fyrirfram ákveðinni fjárfestingarstefnu sem mótuð er í samræmi við þarfir viðskiptavinar.

  • Viðskiptavinur er í góðu sambandi við viðskiptastjóra með símtölum, tölvupóstum eða reglulegum fundum.
  • Ítarlegt yfirlit um stöðu og ávöxtun er sent ársfjórðungslega auk þess sem hægt er nálgast greinargóð yfirlit í netbankanum.
  • Viðskiptavinir einkabankaþjónustu Arion banka fá bestu kjör sem eru í boði hjá bankanum hverju sinni.

Lágmarksfjárhæð í einkabankaþjónustu er fimmtíu milljónir króna.

Eignastýring

Við sjáum um að taka allar ákvarðanir um kaup og sölu eigna fyrir hönd viðskiptavinar í samræmi við fyrirfram ákveðna fjárfestingarstefnu sem miðuð er að þörfum viðskiptavinarins.

Lágmarksupphæð í stýringu er 50 milljónir.

Eignaráðgjöf

Viðskiptavinur er virkur fjárfestir og tekur allar ákvarðanir um fjárfestingar frá degi til dags.

Viðskiptastjóri veitir upplýsingar um stöðu markaða, gefur ráðleggingar um fjárfestingar og framkvæmir viðskipti.

Lágmarksupphæð er 100 milljónir.

Rafrænt ferli

Nú geta viðskiptavinir komið í einkabankaþjónustu á einfaldan, fljótlegan og öruggan máta með því að skrifa undir með rafrænum hætti.

Bóka fund með viðskiptastjóra

Þú sest niður með viðskiptastjóra í einkabankaþjónustu og þið komist að því hvað hentar þínum þörfum út frá fjárhagslegum markmiðum og viðhorfi til áhættu. Valið stendur á milli eignastýringar og eignaráðgjafar.

Starfsfólk Arion Einkabankaþjónustu

Ef þér hentar betur að hringja þá er símanúmer einkabankaþjónustu 444-7410 og við aðstoðum þig eftir þörfum.

Kolbeinn Þór Bragason
Forstöðumaður
kolbeinn.bragason@arionbanki.is

Gunnar Andrésson
Viðskiptastjóri
gunnar.andresson@arionbanki.is

Magnús Már Leifsson
Viðskiptastjóri
magnus.mar.leifsson@arionbanki.is

Björg Kristinsdóttir
Viðskiptastjóri
bjorg.kristinsdottir@arionbanki.is

Helena Kristín Brynjólfsdóttir
Viðskiptastjóri
helena.brynjolfs@arionbanki.is

Sigurrós Lilja Grétarsdóttir
Viðskiptastjóri
sigurros.gretarsdottir@arionbanki.is

Eiríkur Önundarson
Viðskiptastjóri
eirikur.onundarson@arionbanki.is

Jóhanna Thorlacius
Sérfræðingur
johanna.thorlacius@arionbanki.is

Þorsteinn Freyr Þorsteinsson
Viðskiptastjóri
thorsteinn@arionbanki.is