Góðir vextir og stuttur binditími

Vöxtur - 30 dagar

Vöxtur 30 dagar er frábrugðinn öðrum sparnaðarreikningum bankans að því leyti að binditími reikningsins byrjar að telja þegar úttektarbeiðni er gerð, en ekki þegar lagt er inn á reikninginn. Úttekt fer þannig fram á 31. degi eftir dagsetningu úttektarbeiðninnar. Beri útgreiðsludag upp á dag sem ekki er bankadagur skal útgreiðsla vera næsti bankadagur þar á eftir. Bankadagur í samningi þessum er virkur dagur þegar bankar eru opnir á Íslandi.

Úttekt er framkvæmd í netbanka eða appi eins og um venjulega millifærslu sé að ræða og er millifærð 31 degi síðar.

Eiginleikar:

  • Óverðtryggður innlánsreikningur
  • Vextir eru breytilegir og fylgja vaxtatöflu bankans
  • Þrepaskiptir vextir eftir fjárhæð
  • Vextir eru greiddir út mánaðarlega*
  • Engin lágmarksinnistæða er á reikningnum
  • Úttektarbeiðnir eru gjaldfrjálsar í netbanka

* Hægt er að fá vextina greidda út á annan reikning en Vöxtur 30, en ef annar ráðstöfunarreikningur er ekki valinn leggjast vextir við höfuðstól reikningsins.

Þrepin á reikningnum eru:

ÞrepVextir
0 - 1 milljón 8,40%
1 - 5 milljónir8,50%
5 - 20 milljónir8,60%
20 - 50 milljónir8,80%
>50 milljónir8,90%

Stofna reikning

Ef þú ert með netbanka geturðu stofnað nýjan reikning þar. Ef ekki, þá tekur aðeins örlitla stund að stofna netbanka með rafrænum skilríkjum.

Reiknaðu sparnaðinn

kr.
kr.

Niðurstaða