04.05.2026

Ari­on banki hf.: Út­boð sér­tryggðra skulda­bréfa þann 5. maí 2026

Arion banki verður með útboð á sértryggða skuldabréfaflokknum, ARION CBI 31, þriðjudaginn 5 maí 2026.

ARION CBI 31 er verðtryggður skuldabréfaflokkur með föstum 3,65% vöxtum og lokagjalddaga 20. ágúst 2031.

Fyrirkomulag útboðs verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða tekin á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Arion banki áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.

Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur flokksins ARION CBI 26 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum í ofangreindu útboði. Hreint verð í skiptiútboðinu er 100.

Áætlaður uppgjörsdagur er 12. maí 2026. Tekið er við greiðslu reiðufjár auk skipta á ARION CBI 26.

Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 5 maí 2026 á netfangið skuldabrefamidlun@arionbanki.is.
 

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri tilkynningar

Allar tilkynningar
04. maí 2026

Arion banki hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfa þann 5. maí 2026

Arion banki verður með útboð á sértryggða skuldabréfaflokknum, ARION CBI 31, þriðjudaginn 5 maí 2026.
Lesa meira
29. apríl 2026

Arion banki birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2026 miðvikudaginn 6. maí. Fjárfestafundur verður haldinn fimmtudaginn 7. maí

Arion banki birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2026 miðvikudaginn 6. maí, eftir lokun markaða.
Lesa meira
27. apríl 2026

Arion banki hf.: Moody´s staðfestir lánshæfismat Arion banka, horfur eru áfram stöðugar, í kjölfar tilkynningar um að ekki verði af samruna Arion banka og Kviku

Moody ́s Ratings hefur staðfest A2/P-1 langtíma- og skammtíma innlán og A3 lánshæfismat Arion banka fyrir langtíma útgáfur og almenn ótryggð skuldabréf með stöðugum horfum fyrir langtímaeinkunnir.
Lesa meira