09.03.2026

Ari­on banki: Gerð kauprétt­ar­samn­inga vegna kaupauka­kerf­is árs­ins 2025

Í samræmi við starfskjarastefnu Arion banka er í gildi kaupaukakerfi fyrir starfsfólk og stjórnendur bankans. Á grundvelli kaupaukakerfis Arion banka, vegna ársins 2025, hefur bankinn nú gengið frá samningum um kauprétti að samtals 3.939.814 hlutum í félaginu, við hluta af starfsfólki bankans.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Grunnverð er 199,5 á hlut sem er gengi hlutabréfa í bankanum á þeim degi er ársreikningur fyrir árið 2025 var samþykktur og er það ávaxtað yfir ávinnslutíma á 5,5% ársvöxtum og skal verðið m.a. leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að vera ákveðnar á ávinnslutíma.
  • Kaupréttarsamningar vegna 1.514.516 hluta eru með þeim hætti að 1/2 af kauprétti ávinnst á þremur árum frá útgáfu og eftirstöðvar ávinnast á fjórum árum (fimm ár fyrir bankastjóra og starfsfólk sem heyra beint undir bankastjóra) frá útgáfu. Nýtingartímabil er í hvort skipti 20 virkir dagar eftir birtingu ársreiknings. Ef hluti kaupréttar er ekki nýttur á viðkomandi tímabili fellur hann niður.
  • Kaupréttarsamningar vegna 2.425.298 hluta eru með þeim hætti að allur kaupréttur ávinnst á fjórum árum (fimm ár fyrir bankastjóra og starfsfólk sem heyra beint undir bankastjóra) frá útgáfu. Nýtingartímabil er 20 virkir dagar eftir birtingu ársreiknings. Ef kaupréttur er ekki nýttur á nýtingartímabili fellur hann niður.
  • Kaupréttir falla almennt niður ef ráðningarsambandi er slitið.
  • Við tilteknar aðstæður er félaginu heimilt að afturkalla kauprétti í heild eða að hluta í samræmi við reglur félagsins um kaupaukakerfi.
  • Virði kauprétta var reiknað skv. reiknilíkani Black-Scholes af óháðum sérfræðingi.

Heildarfjöldi útgefinna kauprétta samkvæmt framangreindri útgáfu nemur um 0.28% hlutafjár í félaginu.

Upplýsingar um forsendur við verðlagningu kauprétta skv. kaupaukakerfi fyrir árið 2025 og helstu skilmála þeirra er að finna hér.

Upplýsingar um viðskipti stjórnenda með framangreinda kauprétti og afhendingu hlutabréfa eru í viðhengi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri tilkynningar

Allar tilkynningar
04. maí 2026

Arion banki hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfa þann 5. maí 2026

Arion banki verður með útboð á sértryggða skuldabréfaflokknum, ARION CBI 31, þriðjudaginn 5 maí 2026.
Lesa meira
29. apríl 2026

Arion banki birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2026 miðvikudaginn 6. maí. Fjárfestafundur verður haldinn fimmtudaginn 7. maí

Arion banki birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2026 miðvikudaginn 6. maí, eftir lokun markaða.
Lesa meira
27. apríl 2026

Arion banki hf.: Moody´s staðfestir lánshæfismat Arion banka, horfur eru áfram stöðugar, í kjölfar tilkynningar um að ekki verði af samruna Arion banka og Kviku

Moody ́s Ratings hefur staðfest A2/P-1 langtíma- og skammtíma innlán og A3 lánshæfismat Arion banka fyrir langtíma útgáfur og almenn ótryggð skuldabréf með stöðugum horfum fyrir langtímaeinkunnir.
Lesa meira