Stiklað á stóru
Skilurðu ekkert í skilmálunum? Hér finnur þú útskýringar á því helsta.

Skilurðu ekkert í skilmálunum? Hér finnur þú útskýringar á því helsta.

Almennir viðskiptaskilmálar Arion banka eru samningur okkar á milli um réttindi og skyldur þínar sem viðskiptavinar og okkar sem viðskiptabanka. Skilmálarnir gilda hvort sem þú átt í viðskiptum við bankann sem einstaklingur eða lögaðili.
Í sumum tilvikum gilda skilmálarnir einnig þótt þú sért ekki í viðskiptum við okkur, t.d. þegar þú kemur fram fyrir hönd viðskiptavinar okkar.
Skilmálarnir gilda um öll samskipti, viðskipti, þjónustu og vörur sem við bjóðum upp á. Þar sem skilmálarnir eru almenns eðlis geta aðrir skilmálar eða reglur gilt um ákveðnar vörur, þjónustu eða viðskipti sem við bjóðum. Ef svo er, upplýsum við þig um það.
Við getum breytt skilmálunum einhliða og án sérstaks fyrirvara. Breytingar eru birtar á vefsíðu okkar, í tölvupósti og/eða í rafrænum skjölum í netbanka eða appi. Ef breyting varðar rammasamning um greiðsluþjónustu og er ekki til hagsbóta fyrir þig tilkynnum við þér það tveimur mánuðum áður en hún tekur gildi. Ef þú sættir þig ekki við breytinguna hefur þú tvo mánuði til að segja upp viðskiptum. Ef þú gerir það ekki lítum við svo á að þú hafir samþykkt breytinguna.
Athugaðu að verðskrá og vaxtatafla eru óaðskiljanlegur hluti af skilmálunum, en þær má finna á vefsíðu okkar og í næsta útibúi.