

Viðskipti með sjóði eru einföld og án hindrana.
Við viljum jafnari stöðu kynjanna þegar kemur að eignum, fjárfestingum og ákvarðanatöku um fjármagn. Þess vegna hrintum við verkefninu Konur fjárfestum í framkvæmd.
Fermingarbörn og jafnaldrar geta fengið allt að 32.000 króna mótframlag ef þau spara hjá bankanum.
Í Arion Premíu færð þú persónulega fjármálaþjónustu sem tekur mið af þínum þörfum.
Ekkert árgjald, engin færslugjöld af debetkortum og Bláa kortið er ókeypis!
Árangur þinn skiptir okkur máli og við viljum að þú njótir þess að hafa fjármálin og tryggingarnar á sama stað. Ef þú ert bæði í viðskiptum við Arion banka og Vörð bjóðum við þér betri kjör og aukin fríðindi.

Að velja rétta íbúðalánið er stór ákvörðun sem hefur áhrif á fjárhag heimilisins til margra ára.
Við lánum allt að 80% af kaupverði íbúðar og allt að 85% ef um fyrstu kaup er að ræða.

Við viljum að þú njótir góðs af því að vera í viðskiptum við okkur. Markmiðið með Arion fríðindum er að umbuna viðskiptavinum okkar sem nýta sér fjölbreytta þjónustu samstæðunnar.
Þú opnar Arion appið og fylgir örfáum einföldum skrefum. Í kjölfarið færðu góða yfirsýn yfir fríðindin þín og þær þjónustur sem þú ert með hjá okkur ásamt því að sjá hvaða auknu fríðindi standa þér til boða.
Óverðtryggðir íbúðalánavextir fastir til 3ja ára hækka um 0,50 prósentustig og verða 8,75%. Breytingin nær eingöngu til nýrra lána og tekur gildi í dag.
Arion banki hefur birt Áhrifa- og úthlutunarskýrslu fyrir græna fjármögnun bankans árið 2025. Í skýrslunni er að finna yfirlit yfir úthlutun fjármagns til verkefna sem uppfylla kröfur um græna fjármögnun samkvæmt sjálfbærri fjármálaumgjörð bankans og dregin eru fram jákvæð umhverfis- og loftslagsáhrif þeirra.
Ný efnahagsspá Arion banka gerir ráð fyrir að það verði vont í sjóinn í ár og aðstæður krefjandi fyrir íslensku þjóðarskútuna. Umrót í alþjóðakerfinu, stríðsrekstur og hátt olíuverð kynda undir verðbólgu og auka óvissu, sem hefur letjandi áhrif á eftirspurn, hagvöxt og fjárfestingu - bæði erlendis og hérlendis.