Netkort er góður kostur þegar þú verslar á netinu

Netkort er góður valkostur fyrir þá sem vilja vera með aukakort fyrir verslun á netinu.

Einfalt kort sem kostar ekkert, er umhverfisvænt og aðgengilegt í Arion appinu. Engar tryggingar fylgja kortinu.

Kortið er fyrirframgreitt kreditkort sem þú leggur inn á í Arion appinu.

Umhverfisvænt

  • Ekkert kortaplast
  • Eingöngu rafræn notkun
  • Kortanúmerið finnur þú í Arion appinu

Hagstætt

  • Ekkert árgjald
  • Engin færslugjöld
  • Engin útskriftargjöld

Fyrirframgreitt

  • Þú ákveður innstæðu kortsins hverju sinni
  • Þú getur lagt inn fyrir hver kaup

Netverslun

  • Eingöngu fyrir netverslun
  • Styður snertilausar símagreiðslur á netinu
  • Virkar ekki í posa

Netkortið
er í Arion appinu

Þú pantar Netkort í Arion appinu og færð kortanúmerið uppgefið þar. Þú getur svo fylgst með inn- og útborgunum í appinu og netbankanum líkt og á öðrum kreditkortum.

Netkortið er einungis til verslunar á netinu, hvort sem er fyrir stök viðskipti, áskriftir eða boðgreiðslur. Hægt er að borga með símanum á vefsíðum og í öppum sem styðja snertilausar greiðslur. Ekki er því hægt að greiða með netkortinu í Posa.

Kortið er fyrirframgreitt og það er einfalt að leggja inn á það í Arion appinu. Inneign þarf að vera til staðar áður en greitt er með kortinu og hægt er að leggja aftur og aftur inn á sama kortið.

Spurt og svarað 

 
Ég er búinn að bæta Netkortinu við Apple Wallet / Google Wallet en ég get samt ekki greitt með símanum í verslunum:

Það er eingöngu hægt að nota Netkortið þegar þú verslar á netinu. Í dag býður fjöldi verslana upp á þann möguleika að greiða með Apple Pay / Google Pay í netverslun og til þess að það sé hægt þarf að vera búið að bæta kortinu við Apple Wallet / Google Wallet.