11.03.2024

Hringt fyr­ir jafn­rétti kynj­anna í kaup­höll­inni

Iða Brá, aðstoðarbankastjóri Arion, og Halla Tómasdóttir, forstjóri B Team, hringdu í sameiningu bjöllu fyrir jafnfrétti kynjanna í Kauphöll Íslands á Alþjóðadegi kvenna 8. mars síðastliðin, á sameiginlegum viðburði kauphalla á heimsvísu..

Iða Brá og Halla voru heiðursgestir á viðburðinum sem Nasdaq Iceland stóð fyrir í samstarfi við Global Compact á Íslandi, UN Women Ísland og FKA – Félag kvenna í atvinnulífinu.

Þema dagsins var Invest in women: Accelerate progress sem vísar í að valdefling og framgangur kvenna sé lykillinn að velsæld. Við tökum að sjálfsögðu undir þau orð enda eru þau mjög í anda Konur fjárfestum átaksverkefnis Arion.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
01. apríl 2026

Þjónusta og opnunartímar um páskana

Útibú okkar og þjónustuver verða lokuð um páskana, 2. til 6. apríl. Þann 7. apríl verða útibú og þjónustuver opnuð á hefðbundnum tíma.

Lesa meira
31. mars 2026

Hreyfing sem breytir leiknum

Þriðjudaginn 17. mars síðastliðinn fór fram viðburðurinn „Konur fjárfestum – hreyfing sem breytir leiknum“ í Háskóla Íslands. Voru það Arion banki og Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi sem héldu viðburðinn, á ráðstefnunni Viðskipti og vísindi.

Lesa meira
30. mars 2026

Upptökur frá morgunfundi um húsnæðismarkaðinn

Fimmtudaginn 19. mars síðastliðinn hélt Arion banki morgunfund um fasteignamarkaðinn í höfuðstöðvum sínum að Borgartúni 19, undir yfirskriftinni Nýjar reglur á fasteignamarkaði: Bjargráð eða blindgata? Sama dag birti greiningardeild bankans ítarlega skýrslu á vef bankans, Húsnæðismarkaður á krossgötum: Hvað nú?

Lesa meira
Hringt fyrir jafnrétti kynjanna í kauphöllinni - Arion banki