Eru sveiflur í rekstrinum?
Við bjóðum fjölbreyttar leiðir til fjármögnunar sem henta fyrirtækjum á mismunandi rekstrarstigum.

Við bjóðum fjölbreyttar leiðir til fjármögnunar sem henta fyrirtækjum á mismunandi rekstrarstigum.

Með sveigjanlegum lánum getur þú tryggt rekstrarfé til daglegra verkefna, framkvæmda eða framleiðslu.
Þú getur sent okkur línu á netfangið fyrirtaeki@arionbanki.is eða haft samband við okkur í gegnum netspjallið. Einnig er alltaf hægt hringja í síma 444 7000.
Skuldabréfalán henta þegar þörf er á fjármögnun með reglulegum endurgreiðslum.
Lánið er greitt niður með mánaðarlegum eða reglulegum greiðslum
Hægt er að semja um bæði lánsfjárhæð og lánstíma
Sveigjanleg lausn sem hentar mörgum rekstrarformum
Afurðarlán eru lán sem veitt eru fyrirtækjum sem þurfa fjármögnun vegna vörubirgða eða framleiðsluafurða.
Veitt í formi yfirdráttarheimildar eða ádráttarláns
Lánssamningur til eins árs í senn
Lánað er að hámarki 50% af kostnaðar virði afurða/birgða
Lántaki skal upplýsa bankann reglulega um stöðu afurða/birgða
Hentar vel þegar tímabundin fjárþörf er í rekstri fyrirtækja eða sveiflur eru í fjármagnsþörf.
Yfirdráttarheimild er veitt á reikning félagsins
Samið um heimild til allt að eins árs í senn eða skemur
Eingöngu greiddir vextir af nýttri heimild
Umsókn, breytingar og stjórnun heimilda fer fram í netbanka af lykilnotendum

Sérsniðin lausn fyrir fyrirtæki sem standa frammi fyrir byggingar- eða framkvæmdaverkefnum.
Veitt sem yfirdráttarheimild eða ádráttarlán
Lánsfjárhæð metin út frá kostnaðaráætlun
Dregið á lánið í takt við framvindu verks og aukið virði eignar
Í stærri verkefnum getur þurft mat utankomandi fagaðila á kostnaðarvirði
Fyrirtæki geta nú sótt um yfirdráttarheimildir í netbanka Arion og fengið niðurstöðu á örfáum mínútum. Um er að ræða allt að 20 milljón króna fjármögnun, annaðhvort án frekari trygginga eða með sjálfskuldarábyrgð eigenda. Þessi nýi möguleiki einfaldar umsóknarferlið og eykur aðgengi fyrirtækja að rekstrarfjármögnun í netbankanum. Athugið að einungis lykilnotandi getur sótt um.
Fyrirtæki sækja um yfirdráttarheimildir í netbanka Arion undir yfirliti reikninga. Þar er valið undir hvaða reikning yfirdráttaheimildin fellur.

Þú getur sent okkur línu á netfangið fyrirtaeki@arionbanki.is eða haft samband við okkur í gegnum netspjallið. Einnig er alltaf hægt hringja í síma 444 7000.