Farmers Market
Okkur langaði að búa til hönnunardrifið fatamerki. Innblásturinn kemur úr nærumhverfinu, íslenskri náttúru og menningu með smá dassi af sveitarómantík.
Hvað er árangur fyrir Farmers Market?
Bergþóra Guðnadóttir og Jóel Pálsson - stofnendur og eigendur
Okkur langaði að búa til hönnunardrifið fatamerki. Innblásturinn kemur úr nærumhverfinu, íslenskri náttúru og menningu með smá dassi af sveitarómantík. Við tölum stundum um að við staðsetjum okkur á krossgötum þar sem ólíkir heimar mætast – fortíð mætir nútíð, hið íslenska mætir hinu alþjóðlega og sveitin mætir borginni. Okkur þykir spennandi að bræða saman þessa heima. Það er okkar leið til að skapa eitthvað nýtt.
Við höfum haldið fast í þá hugmynd og ég held að þess vegna séum við með mikið af fastakúnnum sem koma aftur og aftur því að þeim líður vel í verslunum okkar og fíla fötin, náttúruleg og umhverfisvæn hráefni, sniðin og konseptið.
Við erum bæði listmenntuð og höfðum litla þekkingu á rekstri áður en við fengum þessa flugu í höfuðið. Við byrjuðum með tvær hendur tómar en fullt af hugmyndum.
Við vildum gera okkar eigin vörur og okkur langaði líka að geta boðið upp á önnur vörumerki sem okkur finnast fanga sama anda.
Síðan eru allt í einu komin 20 ár og við höfum þurft að læra í hverju skrefi – vaxa passlega mikið og hæfilega hratt í gegnum alls konar hæðir og lægðir. Einhvern veginn hefur allt blessast. Við höfum verið svo lánsöm að vinna með frábæru fólki í áranna rás og það er gefandi að fjöldi fólks er með beina og óbeina atvinnu í kringum þetta fyrirtæki okkar.
Það er árangur fyrir okkur.
Árangur getur verið alls konar. Markmið fyrirtækja eru ólík og fjölbreytt, en okkar hlutverk er að hjálpa viðskiptavinum að ná þeim árangri sem þeir stefna að. Þinn árangur er það sem vinna okkar gengur út á alla daga.
Okkur langaði að búa til hönnunardrifið fatamerki. Innblásturinn kemur úr nærumhverfinu, íslenskri náttúru og menningu með smá dassi af sveitarómantík.
Við fengum hugmyndina að Lava Show þegar við urðum vitni að gosinu á Fimmvörðuhálsi.
Við viljum vera kraftmikið aðdráttarafl fyrir Borgarfjörð eystri. Blábjörg er því allt í senn hótel, veitingastaður, spa, brugghús og kaffihús.
Okkur langaði að byggja á íslensku harðfiskshefðinni, sem er jafn gömul byggð á Íslandi, en nálgast hana á nýjan hátt.
Hugmyndin fyrir hátt í tíu árum var að byggja hús utan um nýsköpun á Íslandi. Verkefnið er ekki að leigja skrifstofurými heldur að skapa hér nýtt samfélag.
Rafholt er 20 ára gamalt og hefur árum saman verið eitt stærsta fyrirtæki landsins í rafiðnaðargeiranum.
Kvistabær framleiðir trjáplöntur fyrir skógrækt og þjónustar meðal annars fyrirtæki í kolefnisjöfnun, skógræktarfélög og opinberar stofnanir.
Gróðurhúsið er hugmyndafræði þar sem við nálgumst hótel-, verslana- og veitingaupplifun á nýjan hátt.
Markmið okkar er að bjóða viðskiptavinum upp á besta kaffi sem völ er á, á sem umhverfisvænastan hátt. Þar erum við nýlega búin að ná tveimur stórum áföngum.
Okkar hlutverk hjá Controlant er að hjálpa alþjóðlegum lyfjafyrirtækjum að koma sínum lyfjum/vörum á réttan stað og í réttu ástandi.
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur og hvernig þú getur stjórnað þeim með því að smella á "Stillingar fótspora".