Farmers Market
Okkur langaði að búa til hönnunardrifið fatamerki. Innblásturinn kemur úr nærumhverfinu, íslenskri náttúru og menningu með smá dassi af sveitarómantík.
Hvað er árangur fyrir Lava Show?
Ragnhildur Ágústsdóttir og Júlíus Ingi Jónsson - stofnendur og eigendur
Hugmyndin að Lava Show kviknaði fyrst í hugskotum hjónanna Ragnhildar Ágústsdóttur og Júlíusar Inga Jónssonar árið 2010:
Við fengum hugmyndina að Lava Show þegar við urðum vitni að gosinu á Fimmvörðuhálsi.
Við horfðum full lotningar á rauðglóandi hraunkvikuna streyma niður 200 metra klettavegg og hugsuðum með okkur: Væri hægt að endurskapa þessa upplifun á öruggan hátt fyrir bæði Íslendinga og ferðafólk?
Við höfum keyrt áfram þetta hugarfóstur okkar hjóna á ástríðunni alveg frá upphafi. Fyrst trúði enginn á þetta. Foreldrar, fjölskylda, vinir – allir héldu að við værum gengin af göflunum! Líklega áttaði fólk sig ekki almennilega á því hvað við höfðum í huga. En við vorum sannfærð um að þessi formúla mundi virka.
Erlendir ferðamenn koma hingað til að sjá stórbrotið landslag, kynnast kröftum náttúrunnar og fá innsýn í sögu íslensku þjóðarinnar. Okkur langaði að flétta þetta allt saman í eina ógleymanlega sýningu þar sem við endursköpum þessar stórbrotnu aðstæður með því að bræða hraun og hella því inn í sýningarsal fyrir augum sýningargesta.
Það hefur tekið mörg ár að koma fyrirtækinu á þann stað sem það er í dag og kostað okkur ómælda vinnu. Arion banki hefur staðið mjög dyggilega við bakið á okkur í þessari frumkvöðlavegferð, trúað á hugmyndina alveg frá byrjun og verið mikilvægur samstarfsaðili í að láta þetta vaxa og dafna og verða að því fyrirtæki sem Lava Show er í dag. Án þess stuðnings værum við ekki komin á þennan stað.
Nú skilum við jákvæðri afkomu, höfum fjölda fólks í vinnu og leyfum ferðafólki jafnt sem Íslendingum að fá innsýn í magnaða krafta eldfjallaeyjunnar okkar í öruggu umhverfi og upplifa einu sýningu sinnar tegundar í öllum heiminum. Þá gladdi okkur að hljóta bæði 2024 Best of the Best frá Tripadvisor og 2025 Viator Experience Awards en bæði þessi verðlaun eru veitt þeim sem fá bestu umsagnirnar á þessum ferðabókunarvefjum og samkvæmt því erum við að bjóða upp á einhverja bestu upplifunina í ferðaþjónustu á heimsvísu.
Það er árangur fyrir okkur.
Árangur getur verið alls konar. Markmið fyrirtækja eru ólík og fjölbreytt, en okkar hlutverk er að hjálpa viðskiptavinum að ná þeim árangri sem þeir stefna að. Þinn árangur er það sem vinna okkar gengur út á alla daga.
Okkur langaði að búa til hönnunardrifið fatamerki. Innblásturinn kemur úr nærumhverfinu, íslenskri náttúru og menningu með smá dassi af sveitarómantík.
Við fengum hugmyndina að Lava Show þegar við urðum vitni að gosinu á Fimmvörðuhálsi.
Við viljum vera kraftmikið aðdráttarafl fyrir Borgarfjörð eystri. Blábjörg er því allt í senn hótel, veitingastaður, spa, brugghús og kaffihús.
Okkur langaði að byggja á íslensku harðfiskshefðinni, sem er jafn gömul byggð á Íslandi, en nálgast hana á nýjan hátt.
Hugmyndin fyrir hátt í tíu árum var að byggja hús utan um nýsköpun á Íslandi. Verkefnið er ekki að leigja skrifstofurými heldur að skapa hér nýtt samfélag.
Rafholt er 20 ára gamalt og hefur árum saman verið eitt stærsta fyrirtæki landsins í rafiðnaðargeiranum.
Kvistabær framleiðir trjáplöntur fyrir skógrækt og þjónustar meðal annars fyrirtæki í kolefnisjöfnun, skógræktarfélög og opinberar stofnanir.
Gróðurhúsið er hugmyndafræði þar sem við nálgumst hótel-, verslana- og veitingaupplifun á nýjan hátt.
Markmið okkar er að bjóða viðskiptavinum upp á besta kaffi sem völ er á, á sem umhverfisvænastan hátt. Þar erum við nýlega búin að ná tveimur stórum áföngum.
Okkar hlutverk hjá Controlant er að hjálpa alþjóðlegum lyfjafyrirtækjum að koma sínum lyfjum/vörum á réttan stað og í réttu ástandi.
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur og hvernig þú getur stjórnað þeim með því að smella á "Stillingar fótspora".