Rafræn skjöl

Við bjóðum fyrirtækjum með bókhalds- og launakerfi upp á rafræna birtingu skjala í netbanka viðskiptavinar. Hvort sem það eru launaseðlar, launamiðar, greiðsluseðlar, reikningar, viðskiptayfirlit eða lykilorð þá birtast skjölin í netbanka móttakanda.

Með rafrænum skjölum lækkar kostnaður fyrirtækja s.s. vegna póstburðargjalda, pappírs, umslaga, vinnu starfsmanna og reksturs prentara. Viðskiptin eru umhverfisvæn og aðgengi óviðkomandi er hindrað með öruggum aðferðum viðkomandi netbanka.

Skjölin eru geymd í 7 ár í rafrænni skjalmöppu viðtakanda.

Undirritun rafrænna skjala í netbanka og appi

Til þess að gera bankaþjónustu enn þægilegri þá bjóðum við upp á rafræna undirritun á fjölmörgum skjölum.

Óskað er eftir þjónustunni og í kjölfarið eru skjölin birt undir Rafræn skjöl í appinu og hægt er að undirrita þau með rafrænum skilríkjum.

Þeir einstaklingar sem hafa aðgang að appi og netbanka fyrirtækisins geta nálgast skjöl til undirritunar þar. Athugið að sömu aðilar sjá viðkomandi skjöl ekki í sínum persónulega netbanka eða appi.

Launaseðlar og launamiðar

  • Launakerfi skilar launaskrá sem er send til birtingar í gegnum Netbanka Arion banka hjá Greiðsluveitunni
  • Launaseðlar og launamiðar eru aðgengilegir í netbanka til uppflettingar fyrir launþega

Greiðsluseðlar og reikningar

  • Rafrænn greiðsluseðill birtist eins og viðskiptavinir þekkja hann
  • Reikningarnir eru aðgengilegir til uppflettingar fyrir greiðendur

Viðskiptayfirlit

  • Hægt að senda viðskiptayfirlit eftir hentugleika, til dæmis ársyfirlit eða mánaðaryfirlit
  • Hægt að greina á milli þeirra sem fá yfirlit í rafrænu formi og þeirra sem fá pappírsyfirlit
  • Auðvelt að senda yfirlit til fjölda viðtakenda í einu