19.03.2026

Hús­næð­is­mark­að­ur á kross­göt­um: Hvað nú?

Arion banki kynnti í morgun nýja skýrslu um húsnæðismarkaðinn. Farið var yfir þróun markaðarins og þá drifkrafta sem hafa vegið þyngst. Þá var spáð í spilin og fjallað um mögulega áhrifaþætti fram á veginn. Í stuttu máli má segja að húsnæðismarkaðurinn sé frekar kaldur um þessar mundir, enda hafa vextir verið háir undanfarin þrjú ár, þrengt hefur að fjármálalegum skilyrðum heimila og hægt hefur á fólksfjölgun. Sala íbúða gengur hægt, sér í lagi sala nýrra íbúða, og lagerinn af óseldum íbúðum hrannast upp.

Hætt er við að það hægist á íbúðauppbyggingu, þar sem erfitt er að fjármagna frekari uppbyggingu í núverandi vaxtastigi ef ekki tekst að losa um fjármagn með sölu fullbúinna eigna. Þrátt fyrir það hafa raunverðshækkanirnar sem urðu á tímum heimsfaraldurs aðeins gengið til baka að litlu leyti, þvert á spár og ráðandi efnahagsþætti.

Framvindan á húsnæðismarkaði veltur ekki aðeins á því hvernig markaðurinn losar um lager nýrra íbúða, heldur einnig af minni hvata til að leigja út íbúðir, hertu aðgengi að verðtryggðum lánum, auknu eftirliti með skammtíma leigumarkaði, þróun fólksflutninga, endurkomu Grindavíkur, vaxtastigi og mögulegri inngöngu í Evrópusambandið – en þá eru aðeins taldir þeir áhrifaþættir sem fjallað er um í skýrslunni.

Þrátt fyrir hinar ýmsu áskoranir er gert ráð fyrir hógværum verðhækkunum á íbúðarhúsnæði á næstu árum, en þó þannig að raunverð muni halda áfram að gefa lítillega eftir fram á seinni hluta næsta árs.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
07. maí 2026

Arion banki styður við nýjan kafla í sögu Fenris Creations (áður CCP Games)

Arion banki var fjárhagslegur ráðgjafi Fenris Creations, áður CCP Games, í tengslum við kaup núverandi stjórnenda og fjárfesta á félaginu frá suðurkóreska leikjafyrirtækinu Pearl Abyss. Viðskiptin marka nýjan kafla í sögu eins þekktasta tæknifyrirtækis Íslands og fela í sér að félagið verður á ný undir íslenskri forystu.

Lesa meira
06. maí 2026

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 13,9% á fyrsta ársfjórðungi 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 7. maí kl. 8:30.

Lesa meira
05. maí 2026

Metþátttaka í fjárfestingarkeppni Arion banka og Dyngju

Í mars síðastliðnum héldum við árlegu fjárfestingarkeppnina okkar í samstarfi við Dyngju. Að þessu sinni fór keppnin fram undir formerkjum „Konur fjárfestum“ átaksins okkar og var einungis ætluð konum.

Lesa meira
Húsnæðismarkaður á krossgötum: Hvað nú? - Arion banki