Markmið stefnunnar er að starfsfólk upplifi sveigjanleika og hreinskilni við starfslok og því skiptir máli að þau séu rædd tímanlega. Samkvæmt reglum Arion lætur starfsfólk af störfum við 67 ára aldur.
Sveigjanleiki við starfslok er ávallt samkomulagsatriði milli starfsfólks og stjórnanda. Tilgangurinn er að styðja starfsfólk í því breytingarferli sem framundan er, eða frá því að vera í fullu starfi yfir í að vera utan vinnu. Þegar ákvörðun um starfslok vegna aldurs liggur fyrir er tekið mið af réttindum og öðrum þáttum úr kjarasamningum, reglum og viðmiðum Arion.
· Samtal á milli stjórnanda og starfsmanns þar sem farið er yfir stefnu um starfslok vegna aldurs, fer fram því ári sem starfsmaður verður 61 árs, mögulega fyrr ef óskað er eftir því .
· Starfsfólk fær boð um þátttöku á námskeiði þar sem farið er yfir þau atriði sem tengjast breytingum á lífi einstaklings við það að ljúka störfum.
Arion vill koma til móts við óskir starfsfólks um starfslok vegna aldurs, t.d. með breyttu starfshlutfalli eða starfsskyldum síðustu misserin í starfi en taka þarf mið af óskum einstaklings og fyrirtækis.
Frá 62 ára aldri stendur starfsmanni til boða að minnka við sig vinnu eða láta af störfum og fá ígildi launa í sex mánuði án vinnuframlags. Miðað er við að starfsmaður sé með að minnsta kosti 5 ára starfsaldur þegar starfsmaður lætur af störfum til að uppfylla skilyrði um ígildi launa í sex mánuði.
Hægt er að dreifa launum yfir allt að 2 ára tímabil eða hætta og fá laun í sex mánuði án vinnuframlags. Ef starfsmaður er í hlutastarfi þá eru starfslokakjör í samræmi við það hlutfall. Starfsmaður getur ekki þegið laun frá fyrirtækinu eftir 67 ára aldur.
Við starfslok er haldið kveðjukaffi í samráði við viðkomandi.
Starfsfólk sem lætur af störfum vegna aldurs er boðið til kaffisamsætis ásamt mökum með fyrrum samstarfsfélögum. Eftir starfslok er starfsfólki boðið á næstu árshátíð á eftir ásamt maka.
Uppfært 2. júní 2026