Áreiðanleikakönnun

Mikilvægur liður í starfsemi okkar er að þekkja viðskiptavini, markmið þeirra og aðstæður. Þannig getum við betur uppfyllt þarfir þeirra og verndað gegn hugsanlegum auðkennisþjófnaði eða annarri misnotkun á þjónustu bankans.

Arion banka er auk þess skylt, á grundvelli laga nr. 140/2018, að búa yfir tilteknum upplýsingum um viðskiptavini sína og er óheimilt að framkvæma viðskipti eða eiga í viðskiptasambandi nema þær liggi fyrir. Þessar upplýsingar skipta máli í baráttunni gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og eru því stór þáttur í samfélagsábyrgð bankans.

Einstaklingar

Upplýsingarnar sem við þurfum að eiga um þig eru meðal annars:

  • Nafn og kennitala
  • Heimilisfang og upplýsingar um hvar þú telur fram til skatts
  • Símanúmer og netfang
  • Upplýsingar sem tengjast eðli og tilgangi viðskiptasambands

Smelltu hér til þess að hefja áreiðanleikakönnun