Ert þú í háskóla
og hefur áhuga
á fjárfestingum?
Við kynnum til leiks fjárfestingarkeppni í samstarfi við Dyngju þar sem þú lærir að fjárfesta án þess að taka óþarfa áhættu.


Skráðu þig til leiks
í gegnum Dyngju appið
Þú skráir þig til leiks í gegnum Dyngju appið og færð í kjölfarið 10 milljón sýndarveruleikakrónur til þess að fjárfesta með.
Þú getur fjárfest í sjóðum Stefnis og öllum hlutabréfum sem eru skráð á aðalmarkað Nasdaq á Ísland.
Ætlar þú að vinna
fjárfestingarkeppnina?
Keppnin hefst 1. október og stendur til 31. október en á þessu tímabili munt þú fjárfesta á raunverulegum markaði með það að markmiði að ná fram sem mestri ávöxtun. Sigurvegari keppninnar er síðan sá sem hefur náð fram mestri ávöxtun á tímabilinu.
Heildarverðmæti vinninga eru 275.000 kr.
Fjárfestingarkeppni háskólanna
hefst 1. október
Með opnun markaða þann 1. október hefst fjárfestingarkeppni háskólanna.
Markmið keppninnar er að efla fræðslu um fjármál og fjárfestingar. Þannig má segja að þátttaka sé kjörið tækifæri til að prófa sig áfram í fjárfestingum í rauntíma, án þess að taka nokkra áhættu. Við viljum því hvetja öll til að skoða fræðsluefnið sem má finna í Dyngju-appinu, þar sem farið er yfir helstu atriði og hugtök tengd fjárfestingum.

Leikreglur
- Aðeins nemendur háskólanna geta unnið verðlaun, og verður beðið um staðfestingu á skólavist fyrir þá nemendur sem enda í efstu þremur sætunum.
- Til að eiga möguleika að vinna verðlaun þarf að skrá sig til leiks fyrir 17. október (nemendum er velkomið að taka þátt eftir 17. október en geta þá ekki unnið til verðlauna).
- Það er ekki hægt að kaupa og selja eignir innan sama dags, þú verður að eiga eign í félagi í að minnsta kosti 1 dag og það er 0,75% þóknun á sölufærslum.
- Til að eiga möguleika á verðlaunum þarf að dreifa fjármunum, þ.e. sá sem tekur þátt skal eiga í að lágmarki fjórum fyrirtækjum yfir keppnina.
- Ef einstaklingur verður sekur um innherjasvindl eða misnotar upplýsingar um verðþróun á sá aðili hættu á að verða vikið úr keppni.
- Aðeins er hægt að kaupa og selja eignir á opnunartíma íslensku kauphallarinnar, sem er frá 9:30 til 15:30 alla virka daga.
Spurt og svarað
Hvað er Dyngja?
Dyngja er spegilmynd hins íslenska fjármálamarkaðar og er hægt að eiga viðskipti með hlutabréf skráð á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi. Gögn miðast við kaup- og sölugengi á raunmarkaði.
Hvar næ ég í Dyngju appið?
Þú getur náð í Dyngju appið í App Store (iPhone) og Play Store (Android).
Hvað get ég skráð mig oft til leiks?
Þú getur aðeins skráð þig einu sinni til leiks, miðast við skráningu á skólanetfangi.
Hvenær hefst keppnin?
Keppnin hefst 1. október og klárast 31. október.
Hvenær get ég átt viðskipti með hlutabréf og sjóði í Dyngju appinu?
Það er hægt að eiga viðskipti með sjóði Stefnis og hlutabréf á opnunartíma íslensku kauphallarinnar.
Hvenær opnar íslenska kauphöllin?
Hún opnar 09:30 og lokar 15:30.
Hvað byrja ég með margar sýndarveruleikakrónur í keppninni?
Þú byrjar með 10 milljón sýndarveruleikakrónur.
Hvað má ég eiga mikið í einu fyrirtæki?
Engar hömlur eru á því hversu stóran hluta eignasafns þíns þú mátt nota í staka fjárfestingu, en til að eiga möguleika á verðlaunum þarf að dreifa fjármunum, þ.e. sá sem tekur þátt skal eiga í að lágmarki fjórum fyrirtækjum eða sjóðum yfir keppnina.
Get ég keypt hlutabréf og í sjóðum Stefnis í keppninni?
Já, þú getur bæði keypt í hlutabréfum og í sjóðum Stefnis.
Skiptir máli hvenær ég byrja í leiknum?
Já, það skiptir máli. Þú þarft að hefja leik fyrir 17. október til að geta átt möguleika á að vinna.
Hvað er í verðlaun?
- 1. sæti fær 150.000 kr.
- 2. sæti fær 75.000 kr.
- 3. sæti fær 50.000 kr.