20.03.2026

Arion banki breyt­ir vöxt­um

Eftirfarandi breytingar á inn- og útlánsvöxtum neytenda og fyrirtækja taka gildi fimmtudaginn 26. mars að því undanskildu að breytingar á óverðtryggðum íbúðalánavöxtum föstum til 3ja ára taka gildi strax.

Íbúðalán
  • Óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 9,19%

  • Óverðtryggðir íbúðalánavextir fastir til 3ja ára hækka um 0,15 prósentustig og verða 8,25%

  • Verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,10 prósentustig og verða 4,49%

  • Verðtryggðir íbúðalánavextir fastir til 3ja ára lækka um 0,10 prósentustig og verða 4,64%

Kjörvextir
  • Óverðtryggðir breytilegir kjörvextir einstaklinga og fyrirtækja hækka um 0,25 prósentustig og verða 10,35%

  • Verðtryggðir breytilegir kjörvextir einstaklinga lækka um 0,10 prósentustig og verða 6,15%

  • Verðtryggðir breytilegir kjörvextir fyrirtækja lækka um 0,10 prósentustig og verða 6,35%

Bílalán
  • Kjörvextir bílalána hækka um 0,25 prósentustig og verða 10,75%

Yfirdráttavextir
  • Yfirdráttavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 15,25%

Kreditkort
  • Greiðsludreifing og veltuvextir kreditkorta hækka um 0,25 prósentustig og verða 15,25%

Innlán
  • Vextir veltureikninga haldast óbreyttir

  • Vextir annarra óverðtryggðra reikninga hækka um allt að 0,35 prósentustig

  • Vextir verðtryggðra reikninga lækka um allt að 0,10 prósentustig

Breytingar á vöxtum lána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar. Það sama gildir um breytingar á vöxtum innlána sem falla undir lög um greiðsluþjónustu.

Vaxtabreytingar útlána Arion banka taka mið af fjármögnunarkostnaði bankans á hverjum tíma en einnig af öðrum þáttum, m.a. útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar.

Hækkun breytilegra vaxta óverðtryggðra lána um 0,25 prósentustig kemur fyrst og fremst til vegna hækkunar á fjármögnunarkostnaði bankans. Í tilfelli verðtryggðra lána þá lækka breytilegir vextir um 0,1 prósentustig út frá mati bankans á breytingum á skammtímaraunvöxtum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira