19.03.2026

Hús­næð­is­markaður á kross­göt­um: Hvað nú?

Arion banki kynnti í morgun nýja skýrslu um húsnæðismarkaðinn. Farið var yfir þróun markaðarins og þá drifkrafta sem hafa vegið þyngst. Þá var spáð í spilin og fjallað um mögulega áhrifaþætti fram á veginn. Í stuttu máli má segja að húsnæðismarkaðurinn sé frekar kaldur um þessar mundir, enda hafa vextir verið háir undanfarin þrjú ár, þrengt hefur að fjármálalegum skilyrðum heimila og hægt hefur á fólksfjölgun. Sala íbúða gengur hægt, sér í lagi sala nýrra íbúða, og lagerinn af óseldum íbúðum hrannast upp.

Hætt er við að það hægist á íbúðauppbyggingu, þar sem erfitt er að fjármagna frekari uppbyggingu í núverandi vaxtastigi ef ekki tekst að losa um fjármagn með sölu fullbúinna eigna. Þrátt fyrir það hafa raunverðshækkanirnar sem urðu á tímum heimsfaraldurs aðeins gengið til baka að litlu leyti, þvert á spár og ráðandi efnahagsþætti.

Framvindan á húsnæðismarkaði veltur ekki aðeins á því hvernig markaðurinn losar um lager nýrra íbúða, heldur einnig af minni hvata til að leigja út íbúðir, hertu aðgengi að verðtryggðum lánum, auknu eftirliti með skammtíma leigumarkaði, þróun fólksflutninga, endurkomu Grindavíkur, vaxtastigi og mögulegri inngöngu í Evrópusambandið – en þá eru aðeins taldir þeir áhrifaþættir sem fjallað er um í skýrslunni.

Þrátt fyrir hinar ýmsu áskoranir er gert ráð fyrir hógværum verðhækkunum á íbúðarhúsnæði á næstu árum, en þó þannig að raunverð muni halda áfram að gefa lítillega eftir fram á seinni hluta næsta árs.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira
28. október 2026

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 16,3% á þriðja ársfjórðungi 2026 og 15,1% á fyrstu níu mánuðum ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 29. október kl. 8:30.

Lesa meira
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira