29.05.2026

Arion banki hf.: Kaupréttaráætlun starfs­fólks

Í kjölfar uppgjörs Arion banka hf. vegna fyrsta ársfjórðungs 2026 þann 6. maí 2026 fór fram nýting starfsfólks dótturfélaganna Varðar trygginga hf. og Stefnis hf. á kaupréttum á grundvelli kaupréttaráætlunar fyrir árin 2021-2026.

Nýttir voru kaupréttir fyrir samtals 315.859 hluti á genginu 140,56, 101.142 hluti á genginu 143,36 og 42.643 hluti á genginu 155,93. Heildarfjöldi keyptra hluta í Arion banka hf. nemur því 459.644 hlutum. Um var að ræða síðasta nýtingartímabil eldri kaupréttaráætlunar fyrir árin 2021-2026.

Ný kaupréttaráætlun á grundvelli 10. gr. laga um tekjuskatt var samþykkt á aðalfundi bankans árið 2025, og nær hún til alls fastráðins starfsfólks Arion banka hf. og dótturfélaganna Varðar trygginga hf. og Stefnis hf. Er áætlunin í samræmi við starfskjarastefnu Arion banka hf. og er markmið hennar að samþætta hagsmuni starfsfólks við langtímahagsmuni samstæðunnar.

Gildir hin nýja áætlun til fimm ára frá árinu 2027 til ársins 2031 og tekur hún við af eldri kaupréttaráætlun fyrir árin 2021-2026. Á grundvelli hinnar nýju kaupréttaráætlunar voru í febrúar 2026 gerðir kaupréttarsamningar við starfsfólk bankans og dótturfélaga sem ná til samtals 6.244.677 hluta á ári til ársins 2031. Kaupgengi hlutanna er 199,61.

Heildarfjöldi starfsfólks bankans og dótturfélaga með gilda kaupréttarsamninga er nú 831.
Fyrsta nýtingartímabil samkvæmt hinni nýju kaupréttaráætlun verður í febrúar 2027.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri tilkynningar

Allar tilkynningar
01. júní 2026

Arion banki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki lauk í dag útboði á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 31 fyrir samtals 2.180 m.kr.
Lesa meira
01. júní 2026

Arion banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 22. maí 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 22. viku 2026 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.
Lesa meira
29. maí 2026

Arion banki hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfa þann 1. júní 2026

Arion banki verður með útboð á sértryggða skuldabréfaflokknum, ARION CBI 31, mánudaginn 1. júní 2026.
Lesa meira