01.06.2026
Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 22. maí 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 22. viku 2026 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.
Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu Arion |
| 26.5.2026 | 09:35:46 | 100.000 | 199,75 | 19.975.000 | 11.069.893 |
| 26.5.2026 | 10:02:11 | 200.000 | 200,00 | 40.000.000 | 11.269.893 |
| 26.5.2026 | 15:11:57 | 180.000 | 201,00 | 36.180.000 | 11.449.893 |
| 27.5.2026 | 09:58:21 | 150.000 | 200,50 | 30.075.000 | 11.140.249 |
| 27.5.2026 | 11:38:22 | 300.000 | 200,00 | 60.000.000 | 11.440.249 |
| 28.5.2026 | 10:20:51 | 200.000 | 198,25 | 39.650.000 | 11.640.249 |
| 28.5.2026 | 10:25:17 | 100.000 | 198,25 | 19.825.000 | 11.740.249 |
| 28.5.2026 | 12:59:25 | 200.000 | 200,00 | 40.000.000 | 11.940.249 |
| 29.5.2026 | 15:16:14 | 300.000 | 197,50 | 59.250.000 | 12.240.249 |
| 1.730.000 | 344.955.000 | 12.240.249 |
Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:
| Dagsetning | Tími | Keypt SDR | Viðskiptaverð | Kaupverð (SEK) | SDR í eigu Arion |
| 26.5.2026 | 12:34:58 | 135 | 14,9 | 2.012 | 3.685.415 |
| 26.5.2026 | 12:35:06 | 27 | 14,9 | 402 | 3.685.442 |
| 26.5.2026 | 12:35:17 | 135 | 14,9 | 2.012 | 3.685.577 |
| 26.5.2026 | 12:41:33 | 4.703 | 14,9 | 70.075 | 3.690.280 |
| 29.5.2026 | 10:48:29 | 8.000 | 14,9 | 119.200 | 3.698.280 |
| 13.000 | 193.700 | 3.698.280 |
Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 22 samtals 14.655.173 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 22 samtals 15.938.529 eigin hluti og heimildarskírteini. Tekið er fram að þann 27. maí lækkuðu eigin bréf bankans um 459.644 hluti þegar starfsmenn Varðar trygginga og Stefnis hf. nýttu kauprétti skv. kaupréttaráætlun. Samtals á bankinn nú sem nemur 1,15% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 1.730.000 hluti fyrir 344.955.000 kr. og 13.000 heimildarskírteini fyrir 193.700 sænskar krónur.
Heimilt er að kaupa allt að 532.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,04% af útgefnum hlutum og allt að 26.068.000 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,89% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,93% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 100.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.900.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5,0 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31. desember 2026. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1290/2025 um sama efni.