01.06.2026
Arion banki lauk í dag útboði á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 31 fyrir samtals 2.180 m.kr.
Í flokkinn ARION CBI 31 bárust 9 tilboð að fjárhæð 5.780 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,64 – 3,67%. Tilboð að nafnvirði 2.180 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 3,65%. Heildarstærð flokksins verður 26.300 m.kr. eftir útgáfuna.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 8. júní 2026.
Skuldabréfin eru gefin út undir útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa. Grunnlýsing útgáfurammans má nálgast hér.
Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.