Fjármál á mannamáli
Við viljum hjálpa ungu fólki að taka góðar ákvarðanir. Þess vegna settum við saman fjármálafræðslu á mannamáli.

Við viljum hjálpa ungu fólki að taka góðar ákvarðanir. Þess vegna settum við saman fjármálafræðslu á mannamáli.

Við vitum að fjármál geta verið flókin. Það er þó mikilvægt að kynna sér hlutina vel, því þá verða næstu skref mun auðveldari.
Hér finnur þú útskýringar á öllu því helsta sem þú þarft að hafa í huga áður en þú kaupir þína fyrstu íbúð.
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval sparnaðarreikninga – þú velur þann reikning sem hentar þér best.
Að greiða í lífeyrissparnað er snjöll leið til að hækka launin og spara um leið.
Verðtryggt lán er almennt með lægri mánaðarlega greiðslubyrði en óverðtryggt lán miðað við sama lánstíma. Þar sem þú borgar minna af láninu í hverjum mánuði tekur að janfaði lengri tíma að borga það upp.
Lánið er tengt vísitölu neysluverðs, sem þýðir að það sveiflast í takt við verð á vörum og þjónustu í landinu.
Ef verðlag hækkar gerir lánið það líka, en ef verðlag lækkar gerir lánið það sömuleiðis.
Óverðtryggt lán er almennt með hærri mánaðarlega greiðslubyrði en verðtryggt lán. Þar sem þú borgar meira af láninu í hverjum mánuði tekur að jafnaði styttri tíma að borga það upp.
Lánið er ekki tengt vísitölu neysluverðs, sem þýðir að það sveiflast ekki í takt við verð á vörum og þjónustu í landinu.
Þegar það er verðbólga hækkar lánið því ekki.
Höfuðstóll er upphæðin sem þú tókst að láni í upphafi. Af höfuðstólnum reiknast svo vextir sem eru greiddir mánaðarlega.
Ef lánið er verðtryggt leggjast líka verðbætur ofan á höfuðstólinn, sem þýðir að lánið hækkar á milli mánaða ef það er verðbólga.
Ef þú greiðir aukalega inn á höfuðstólinn lækkar skuldin hraðar og þá lækka vaxtagreiðslurnar.
Fastir vextir eru bundnir í ákveðinn tíma.
Þetta tryggir þig fyrir vaxtasveiflum á meðan þeir eru bundnir, sem þýðir að vextirnir af láninu hækka ekki þegar verðbólga hækkar.
Ef þú ert með verðtryggt lán, með föstum vöxtum, geta afborganir samt hækkað þegar það er verðbólga.
Þetta er vegna þess að höfuðstóll lánsins hækkar þegar verðlag í landinu hækkar.
Breytilegir vextir geta tekið breytingum þegar aðstæður breytast.
Þetta þýðir að vextirnir af láninu geta t.d. hækkað, eða lækkað, þegar breytingar verða á stýrivöxtum Seðlabankans.