14.09.2010
10-11 verslanirnar boðnar til sölu
23 verslanir 10-11 færðar úr Högum og boðnar til sölu á næstu mánuðum
Ákveðið hefur verið að færa rekstrarfélag 10-11 út úr Hagasamstæðunni og selja það í opnu söluferli.
Undirbúningur er þegar hafinn að sölu 10-11 verslananna og gert er ráð fyrir að fyrirtækið fari í sölu á næstu mánuðum.
Með þessum breytingum fækkar matvöruverslunum í eigu Haga um röskan þriðjung.
Eignabjarg ehf., eignarhaldsfélag Arion banka sem fer með eignarhlut bankans í Högum, hefur falið fyrirtækjaráðgjöf bankans að hefja undirbúning að sölu á öllum hlutum eignarhaldsfélagsins í rekstrarfélagi 10-11. Unnið er að aðskilnaði félagsins frá Hagasamstæðunni og gert er ráð fyrir að tilkynnt verði um endanlega tilhögun og framkvæmd söluferlis á næstu vikum.
Verslanir 10-11 hafa verið starfræktar frá árinu 1991 og verið hluti af Hagasamstæðunni frá árinu 1999. Nú eru reknar 23 verslanir undir nafni 10-11 víðsvegar um höfuðborgarsvæðið, í Reykjanesbæ og á Akureyri og starfa þar samtals um 230 starfsmenn. Verslanir 10-11 eru opnar allan sólarhringinn og þar er lögð áhersla á einfalda og fljótlega verslun. Vörumerkið 10-11 er sterkt og verslanir félagsins vel staðsettar. Að undanförnu hefur bankinn orðið þess áskynja að mikill áhugi er á félaginu.
Í sátt Samkeppniseftirlitsins og Arion banka, sem gerð var í kjölfar yfirtöku bankans á Högum, beinir Samkeppniseftirlitið þeim tilmælum til bankans að kanna möguleika á því að selja Haga í fleiri en einum hluta í því skyni að auka samkeppni. Jafnframt kemur fram að tilmælunum sé ekki ætlað að víkja til hliðar augljósum hagsmunum af því að hámarka verðmæti og tryggja hagsmuni bankans.
Sölu á 10-11 verslunum Haga er þannig m.a. ætlað að dreifa eignarhaldi á matvörumarkaði og gefst fleiri aðilum nú kostur á að láta að sér kveða á þeim vettvangi en verið hefur. Þannig er bankinn að koma til móts við sjónarmið samkeppni án þess að fórna fjárhagslegum hagsmunum. Hlutdeild 10-11 í matvöruveltu Haga er tæp 7%. Eftir söluna á 10-11 fækkar matvöruverslunum Haga úr 61 í 38.
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka: „Það er ekki hlutverk bankans að reka verslanir og það er auðvitað ákveðinn liður í endurreisn íslensks viðskiptalífs að koma verslunum Haga í eðlilegan farveg. 10-11 verslanirnar eru öflugt félag og sjálfstæð eining innan samstæðunnar. Þegar við seljum þessar 23 verslanir sér gefum við fleiri aðilum kost á að koma inn á íslenska matvörumarkaðinn. Nýir eigendur munu eflaust láta að sér kveða í samkeppni á markaðnum með því að breyta áherslum og nýta vel það viðskiptatækifæri sem öflugt vörumerki, umtalsverð velta og góðar staðsetningar verslana fela í sér.“