28.05.2015

10 fyrir­tæki valin til þátt­töku í viðskipta­hraðl­in­um Startup Reykja­vik 2015

Viðskiptahraðallinn Startup Reykjavík sem nýverið var valinn besti viðskiptahraðall Norðurlandanna fer fram í fjórða sinn nú í sumar á vegum Arion banka og Klak Innovit. Alls bárust um 150 umsóknir og hafa tíu teymi verið valin til þátttöku.

“Fyrirtækin sem valin hafa verið til þátttöku í ár eru með mikla breidd í starfsemi og teymin eru sterk. Framkvæmd viðskiptahugmynda veltur mest á því fólki sem við hana starfar og við hlökkum til að vinna með fyrirtækjunum í sumar og í framhaldinu. Að Startup Reykjavík hafi verið valinn Viðskiptahraðall ársins á Norðurlöndunum nýlega setur svo jákvæðan þrýsting á okkur að halda áfram að efla frumkvöðlaumhverfið á Íslandi.”

- Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður Arion banka í nýsköpun.

Verkefnin sem valin hafa verið til þátttöku í Startup Reykjavík nú í sumar:

  • Wasabi Iceland - Ætla að rækta hágæða wasabi á Íslandi með því að nýta hreint vatn og endurnýjanlega orku

  • Kvasir software - Munu nútímavæða borðspil þar sem síminn þinn er stjórntækið og sjónvarpið borðspilið

  • Farma - Tengir saman rafræn skilríki og rafræna lyfseðla. Fólk getur keypt lyf á netinu með öruggum hætti og fengið sent heim

  • Viking Cars - Vettvangur til þess að deila bílnum sínum með öðrum með öruggum hætti - þetta er eins og Airbnb fyrir bíla

  • Spor í sandinn - Munu byggja sjálfbært vistkerfi í hjarta borgarinnar sem býður upp á nýja upplifun í ferðaþjónustu

  • Genki instruments – Eru að þróa nýstárleg raftónlistarhljóðfæri sem tengja má saman með áður óséðum hætti

  • Three42 - Hugbúnaður sem tekur við upplýsingum úr bílnum þínum og tengir beint við snjallsímann

  • Delphi - Nýta þekkingu fjöldans til þess að spá fyrir um tiltekna viðburði í framtíðinni

  • PuppIT - Þróa tækni til að taka upp myndefni í rauntíma til þess að nýta fyrir kvikmyndir, leiki, leikhús og sýndarveruleika

  • Hún / Hann Brugghús - Stefna að því að búa til hágæða bjór úr íslenskum hráefnum

Teymunum tíu sem valin hafa verið til þátttöku verður lagt eftirfarandi til:

  • 2 milljónir í hlutafé frá Arion banka gegn 6% hlutdeild í fyrirtækinu

  • 10 vikna þjálfun/ráðgjöf frá mentorum víðs vegar að úr atvinnulífinu

  • Sameiginleg aðstaða allra viðskiptateymanna

  • Tækifæri til að kynna sig og verkefni sín fyrir fjárfestum á lokadegi verkefnisins

Á síðustu þremur árum hafa þrjátíu teymi tekið þátt í Startup Reykjavík og hefur Arion banki fjárfest í þeim öllum auk þess að fjármagna vinnusmiðjur og aðstöðu teymanna. Framkvæmd verkefnisins er í höndum Klak Innovit.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira