19.03.2009
100 kall á haus
Kaupþing ásamt Íslandsbanka, Landsbanka og Spron styrkja herferð Rauða kross Íslands og Hjálparstarfs kirkjunnar "100 kall á haus".
Markmiðið er að safna 100 krónum frá hverju einasta mannsbarni á landinu - samtals 32 milljónum. Fénu verður varið til góðra verka fyrir alla landsmenn sem standa frammi fyrir erfiðleikum, hvort sem þörfin er fyrir matarúthlutun eða sálrænan stuðning.
Stöndum saman og gefum 100 kall á haus fyrir hvern og einn í fjölskyldunni.
Þeir sem vilja leggja söfnuninni meira til - eða geta ekki hringt - er bent á reikningsnúmerið 1151-26-3500 (kt. 530269-2649).