10.03.2010

14.000 viðskipta­vinir Arion banka hafa nýtt sér lausnir bankans og op­in­ber úr­ræði

Á annað þúsund einstaklingar og fjölskyldur hafa nýtt sér sérstakar lausnir Arion banka þær 9 vikur sem þær hafa staðið til boða. Ungt fólk með sína fyrstu íbúð er þar í miklum meirihluta. Um 35% viðskiptavina með erlend íbúðalán hafa nýtt sér höfuðstólsleiðréttingu Arion banka. Samtals hafa um 14000 viðskiptavinir bankans nýtt sér lausnir bankans eða opinberu úrræðin sem eru í boði.

Að meðaltali hefur starfsfólk Arion banka afgreitt um 150 lánabreytingar á viku. Lausnir bankans taka mið af misjafnri skuldastöðu viðskiptavina og því hvort um er að ræða erlend eða innlend húsnæðislán. Samhliða því að taka á móti fyrirspurnum hefur bankinn að eigin frumkvæði haft samband við þá viðskiptavini sína sem hvað verst eru staddir til þess að kynna þeim þær leiðir sem í boði eru. Lausnir bankans standa viðskiptavinum til boða fram til 1. júlí næstkomandi.

Ef viðskiptamenn Arion banka sem eru greiðendur erlendra lána fá sér dæmdan betri rétt í Hæstarétti, áréttar bankinn að þeir missa ekki þann rétt þó þeir hafi skuldbreytt lánum sínum yfir í íslenskar krónur.

Arion banki hefur einnig ákveðið að krefjast ekki uppboða vegna vangoldinna húsnæðislána til loka ársins 2010. Það er óháð því hvort um er að ræða innlend eða erlend lán.

Hermann Björnsson, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka segir ljóst að bankinn komi til móts við vanda margra viðskiptavina. „Við höfum fjölbreyttar lausnir í boði fyrir viðskiptavini og leitumst við að finna ásættanlegar leiðir fyrir fólk í skuldavanda. Okkar markmið er að vera búin að finna hentugar lausnir með öllum sem búa við skuldavanda fyrir sumarið."

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira