10.11.2009
1998 ehf. enn í úrlausnarferli hjá Nýja Kaupþingi
Mál 1998 ehf. er enn í úrlausnarferli hjá Nýja Kaupþingi. Yfirtaka á hlutabréfum félagsins er liður í því að tryggja hagsmuni bankans í yfirstandandi ferli.
Í öllum skuldamálum fyrirtækja sem koma til skoðunar í bankanum er fylgt verklagsreglum bankans. Í þeim segir m.a. að bankinn leggi áherslu á samstarf við eigendur og stjórnendur í vinnu við endurskipulagningu fyrirtækja. Þannig er eigendunum gefið tækifæri til að koma á framfæri hugmyndum að lausn á vandamálum fyrirtækja sinna. Til að gæta jafnræðis telur bankinn mikilvægt að nálgast öll mál með þessum hætti.
Þótt eigendur fyrirtækja fái tækifæri til að leggja fram hugmyndir að lausn á skuldavanda félaga sinna er ljóst að þær þurfa að vera raunhæfar. Þær þurfa þannig að standast samanburð við aðra möguleika í stöðunni og vera í takt við kröfu bankans um að endurheimta sem mest af verðmætum sínum.
Ekki er komin niðurstaða í máli 1998 og ítrekar bankinn að allar tölur sem nefndar hafa verið í fjölmiðlum eru úr lausu lofti gripnar.