13.08.2013
2.100 krakkar á Arion banka mótinu
Arion banka mótið í fótbolta verður haldið í þriðja sinn í Víkinni í Fossvogi um næstu helgi. Mótið nýtur sívaxandi vinsælda eins og sést klárlega á fjölda þátttakenda en ríflega 2.100 krakkar eru skráðir til leiks í ár sem er nærri því tvöföldun frá því í fyrra. Þær breytingar hafa verið gerðar á mótinu í ár að 6. flokki var bætt við og er mótið því ætlað upprennandi fótboltastjörnum af báðum kynjum í 6., 7. og 8. flokki í knattspyrnu. Keppt verður á 18 fótboltavöllum og verður leikfyrirkomulagið með þeim hætti að hver keppandi þarf eingöngu að vera á svæðinu í um þrjá tíma í senn. Allir þátttakendur mótsins munu fá glæsilegan Disney glaðning frá Arion banka og máltíð frá Grillhúsinu en matreiðslumenn þaðan munu grilla á svæðinu líkt og fyrri ár. Þá mun Arion banki veita liðum sem koma langt að samgöngustyrk. Nánari upplýsingar má finna hér.