17.03.2010
2. sæti í Mottumars
Skorað var á karlkyns starfsmenn bankans að sýna stuðning í verki með því að taka þátt í Mottumars og safna áheitum. Þeir létu ekki sitt eftir liggja og hafa um 70 strákar skráð sig til leiks. Lið þeirra á vefsíðu Krabbameinsfélagsins, er nú í 2. sæti í liðakeppni og hefur safnað 334.451 kr. Einungis vantar nokkur þúsund krónur upp á að strákarnir okkar nái 1. sætinu.
Við hvetjum alla til þess að styrkja þetta góða málefni hvort sem er með söfnun á mottu eða áheitum. Strákar!!! nú eru síðustu forvöð að láta drauminn rætast um að líta út eins og Burt Reynolds.