07.12.2009
200 milljónir til e-korthafa
Þúsundir e-korthafa munu á næstu dögum fá sendar til sín endurgreiðsluávísanir frá Arion banka. Þeir fjölmörgu viðskiptavinir sem hafa gert e-kortið að sínu aðal greiðslukorti fá nú endurgreiddar umtalsverðar fjárhæðir en heildarávinningur e-korthafa af notkun kortsins er tæpar 200 milljónir. Upphæð ávísunarinnar sem viðskiptavinur fær endurspeglar kortanotkun hans síðastliðna 12 mánuði en hægt er að fá enn hærri endurgreiðslu með því að versla við yfir 200 samstarfsfyrirtæki e-kortanna.
Þeim viðskiptavinum sem eru með e-vildarkort gefst nú kostur á því að kaupa Vildarpunkta á frábæru tilboði til 18. desember. Þeir fá tvo Vildarpunkta fyrir hverja krónu.
Nánari upplýsingar um samstarfsaðila er að finna á http://www.ekort.is/.