30.05.2014

240 teymi sóttu um að taka þátt í Startup Reykja­vík 2014

Nýsköpunarsmiðjan Startup Reykjavík mun fara fram í þriðja sinn nú í sumar og standa yfir frá 16. júní til 23. ágúst. Sem fyrr barst mikill fjöldi umsókna og styttist í að tilkynnt verði hvaða 10 verkefni munu taka þátt í Startup Reykjavík í sumar. Góður stígandi hefur verið í fjölda umsókna undanfarin ár en í ár bárust 240 umsóknir sem er 16% aukning frá fyrra ári. Það eru Arion banki og Klak Innovit sem standa að Startup Reykjavík.

Þau teymi sem valin verða til þátttöku verða tilkynnt á Startup Iceland ráðstefnunni sem fer fram í byrjun júní. Teymunum tíu verður lagt eftirfarandi til:

  • 2 milljónir í hlutafé frá Arion banka gegn 6% hlutdeild í fyrirtækinu

  • 10 vikna þjálfun/ráðgjöf frá mentorum víðs vegar að úr atvinnulífinu

  • Sameiginleg aðstaða allra viðskiptateymanna

  • Tækifæri til að kynna sig og verkefni sín fyrir fjárfestum á lokadegi verkefnisins

Arion banki hefur fjárfest í 20 sprotafyrirtækjum í gegnum Startup Reykjavík á síðustu tveimur árum og munu tíu ný fyrirtæki bætast í þann hóp nú í sumar.

Arion banki styður einnig við Startup Energy Reykjavík sem er nýsköpunarsmiðja fyrir sprota í orkutengdum iðnaði. Í ár voru sjö fyrirtæki valin til þátttöku sem kynntu sig fyrir fjárfestum á svokölluðum fjárfestadegi sem fram fór í höfuðstöðvum Arion banka síðastliðinn miðvikudag. Skipulag og framkvæmd Startup Engergy Reykjavík er í höndum Klak Innovit og Iceland Geothermal. Startup Energy Reykjavik er unnið í samstarfi Arion banka, Landsvirkjunar, Nýsköpunarmiðstöðvar og GEORG.

Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður nýsköpunar hjá Arion banka:

„Það er virkilega ánægjulegt að sjá hvernig Startup Reykjavík hefur fest sig í sessi sem mikilvægur hluti af frumkvöðlaumhverfinu á Íslandi. Fjöldi umsókna í Startup Reykjavík í ár endurspeglar það. Arion banki er stoltur af því að standa bæði að baki Startup Reykjavík og Startup Energy Reykjavík, að fjárfesta beint í íslenskum frumkvöðlafyrirtækjum og vera þannig beinn stuðningsaðili við frumkvöðlaumhverfið á Íslandi.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira