11.10.2013
25 námsmenn fá styrk til bókakaupa frá Arion banka
Arion banki veitti nýlega 25 námsmönnum sem eru í Námsmannaþjónustu Arion banka bókastyrk að upphæð 30.000 krónur hverjum. Um er að ræða námsmenn á framhaldsskóla- og háskólastigi, en um 4.500 námsmenn sóttu um styrk að þessu sinni.
Arion banki veitir bókastyrki tvisvar á ári, við upphaf haust- og voranna. Næst verður opnað fyrir umsóknir um bókastyrk á vefsíðu Arion banka þann 7. janúar 2014.
Meðfylgjandi mynd er frá afhendingu styrksins sem fram fór í húsakynnum Arion banka Borgartúni 19. Elísabet Grétarsdóttir markaðsstjóri Arion banka afhenti styrkinn.