03.11.2011

30 náms­menn fá styrk til bóka­kaupa frá Arion banka

Arion banki veitti nýverið 30 námsmönnum sem eru í Námsmannaþjónustu Arion banka bókastyrk að upphæð 30.000 krónur hverjum. Um er að ræða námsmenn á framhaldsskóla- og háskólastigi.

Styrkurinn er árlegur og verður næst veittur í október 2012. Hægt var að sækja um styrkinn á facebook-síðu Námsmannaþjónustu Arion banka. Þar er einnig hægt að sækja fróðleik um fjármál, tilboð og leiki sem í gangi eru hverju sinni.

Þessu til viðbótar fengu tæplega 300 háskólanemar niðurgreiðslu nemendafélagsgjalda að upphæð 2.500 krónur hver.

Námsmannaþjónusta Arion banka er sérsniðin að þörfum námsmanna og fá okkar námsmenn betri kjör og meiri fríðindi. Nánari upplýsingar um Námsmannaþjónustu Arion banka má finna hér.

Meðfylgjandi er mynd frá afhendingu styrksins sem fram fór í húsakynnum Arion banka Borgartúni 19. Helgi Bjarnason framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka (t.h.) afhenti styrkinn.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira