26.09.2012

320 manns hlustuðu á Jón Jóns­son á Ak­ur­eyri

Það var metþátttaka á fræðslufyrirlestri Jóns Jónssonar í Hofi á Akureyri í gærkvöldi en 320 ungmenni mættu þangað til að hlýða á þennan unga hagfræðing ræða um fjármál. Auk Akureyringa kom fólk með rútu frá Siglufirði með viðkomu á Ólafsfirði og Dalvík. Um var að ræða nemendur Verkmenntaskólans á Akureyri, Menntaskólans á Akureyri og Menntaskólans á Tröllaskaga.

Krakkarnir sem sátu fundinn höfðu áhugaverða hluti um hann að segja, þ.á m. „Skemmtilegasta námskeið um fjármál sem ég hef farið á“, „Hélt athygli allan tímann“ og „Kom á óvart hvað ég kosta í einn mánuð“.

Þetta var annar fyrirlesturinn sem Jón heldur nú í haust en næsti fyrirlestur verður haldinn á Selfossi, þriðjudaginn 2. október í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Fyrirlestrarnir eru ætlaðir fólki á framhaldsskólaaldri. Jón hélt einnig fyrirlestra í vor fyrir börn á fermingaaldri, þar á meðal í Reykjavík, en fyrirlesturinn sem hann hélt fyrir norðan í gærkvöldi var sá aðsóknarmesti fram til þessa.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira