12.09.2011

57 starfs­mönn­um Arion banka sagt upp störf­um

Í dag fengu 57 starfsmenn Arion banka afhent uppsagnarbréf. Þetta eru 38 starfsmenn í höfuðstöðvum og 19 á öðrum starfsstöðvum. Vinnumálastofnun hefur þegar verið tilkynnt um uppsagnirnar.

Uppsagnirnar nú eru liður í hagræðingarferli sem staðið hefur yfir frá stofnun bankans. Það er erfitt skref að þurfa að grípa til uppsagna en nauðsynlegt til að bregðast við aðstæðum. Ekki eru fyrirhugaðar frekari aðgerðir af þessu tagi.

Arion banki stendur frammi fyrir ákveðnum kaflaskilum í starfsemi sinni. Annars vegar líður að því að vinnu við úrlausnarmál ljúki. Hins vegar hefur dregið hratt úr vinnu tengdri endurskipulagningu í ytra umhverfi sem og við rannsókn og uppgjör af ýmsu tagi er tengjast fortíðinni.

Almennt má ljóst vera að rekstur íslenska fjármálakerfisins er of kostnaðarsamur. Fjöldi starfsfólks hjá fjármálafyrirtækjum hér á landi er of mikill miðað við umfang kerfisins. Sú staðreynd á einnig við um Arion banka.

Að auki eru ný verkefni, s.s. eftirspurn eftir nýjum lánum og fjárfestingar í lægð sem stendur. Þrátt fyrir að afkoma bankans hafi verið viðunandi síðastliðin misseri er stór hluti þess hagnaðar tilkominn vegna endurmats á lánabók á fyrirtækjasviði bankans. Arðsemi af reglulegri starfssemi er ekki ásættanleg til lengri tíma litið. Arion banki hefur styrkt stöðu sína á markaði frá stofnun bankans en engu að síður eru aðgerðirnar nú nauðsynlegar til að treysta stöðu bankans og samkeppnishæfni til framtíðar.

Stjórnendum Arion banka þykir þungbært að hafa þurft að grípa til þessara óhjákvæmilegu aðgerða.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira