29.04.2011

70% viðskipta­vina hafa nú þeg­ar stað­fest endurút­reikning er­lendra íbúða­lána

Arion banki er að ljúka við endurútreikning erlendra íbúðalána. Eftir á að birta endurútreikning um 20 lána sem eru flóknari í framkvæmd og þarfnast sérmeðferðar. Gert er ráð fyrir að endurútreikningi þeirra lána muni ljúka í maí.

Arion banki hafði þegar birt 98% þeirra lána sem áttu rétt á endurútreikning strax í lok febrúarmánaðar. Viðskiptavinir tóku vel við sér og völdu sér þá leið sem hentaði þeim best.

Valkostir sem viðskiptavinum bankans standa til boða eftir endurútreikning erlendra íbúðalána eru verðtryggt eða óverðtryggt lán með jöfnum afborgunum og verðtryggt eða óverðtryggt jafngreiðslulán. Auk þessara valkosta gefst viðskiptavinum kostur á því að halda óbreyttu láni, hvort sem um upphaflegt lán er að ræða eða nýttar hafa verið lausnir bankans.

Viðskiptavinum bankans er bent á að allar nánari upplýsingar um þá valkosti sem í boði eru má finna á vef Arion banka og í netbankanum. Eru viðskiptavinir hvattir til að setja sig í samband við þjónusturáðgjafa hafi þeir spurningar varðandi endurútreikninginn eða til að kynna sér aðra kosti.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira