21.05.2010
80% viðskiptavina eru ánægðir með þjónustu útibúanna
Viðskiptabankasvið Arion banka gerði nýlega í samstarfi við Capacent þjónustukönnun meðal viðskiptavina útibúa bankans og niðurstöðurnar voru fagnaðarefni. Í könnuninni kemur fram að um 80% viðskiptavina bankans eru ánægðir með þjónustu síns útibús.
Starfsfólk Arion banka er ánægt með að þjónustustefna bankans og markmið varðandi þjónustu til viðskiptavina skili sér í almennri ánægju. Starfsfólk ætlar að halda áfram á sömu braut og nýta þessa þjónustukönnun til að gera enn betur.